Skinfaxi - 01.02.1991, Síða 20
HREYFIÞROSKI
Afleiðingar hreyfingarleysisins
sem nútímabörnin búa við eru
þær að þau þroskast ekki eðlilega.
Sum yngri börn fá enga
íþróttaþjálfun í skólanum. Það
ástand er óvið-
unandi. Hvað er til
ráða? Sérstakir
íþróttaskólar fyrir
börn? Hver ber
ábyrgðina og hvað
geta þeir gert?
Þurfa börnin
nokkuð að vera í
góðri þjálfun, þar
sem þau koma til
með að vinna á
tölvur þegar þau
eru orðin stór?
Styrkur og kraftur
ungra barna er lítill
Anton Bjarnason, lektor í íjjróttafræðum
við Kennaraháskóla Islands, hefur um
nokkurt skeið rannsakað þetta vandamál
og segist hann
steini lostinn eftir
að hafa komist að
því að fjöldi barna
geti ekki einu
sinni hoppað á
einumfæti án þess
að missa
jafnvægið, hvað
þá gengið óstudd
á slá.
„Þegar börnin
koma í sex ára
bekk er hreyfi-
þroski margra
mjög takmark-
aður, þau vantar
allagrunnþjálfun,
þolið er lítið og
samamásegjaum
styrkinn og
kraftinn. Það er
fyllsta ástæða til
þess að vekja
foreldra, uppal-
endur, fþrótta-
kennara og skóla-yfirvöld til
umhugsunar um hreyfingarleysi barna”,
segir Anton sem hefur farið á milli
skóla og dagheimila til að uppfræða
fólk um ástandið.
20
Skinfaxi