Skinfaxi - 01.02.1991, Qupperneq 28
í Þ R Ó T T I R
Gamlir þjóðlegir leikir og íþróttir
Síðari þáttur eftir Þorstein Einarsson
Þorsteinn Einarsson, fyrrverandi
íþróttafulltrúi, hefur um nokkurt
skeið kynnt sér og safnað saman
heimildum um íþróttir forfeðra
okkar. Það er okkur mikils virði
að geta kynnst þeim fjölmörgu
leikjum sem þeir stunduðu.
Forfeður okkar kvörtuðu ekki yfír
aðstöðuleysi til íþróttaiðkana, þeir
iðkuðu íþróttir sem hægt var að
stunda í baðstofum og úti á túni.
Nú á tímum tölvuvæðingar og
sjónvarpsinnrásar er mikið rætt
um hreyfingu barna eða öllu
heldur hreyfingarleysi. Margar
íþróttir og leikir forfeðra okkar
er hægt að stunda heima í stofu á
milli þess að ný myndbandsspóla
er sett í tækið eða smellt er á nýjan
tölvuleik. Hér rekur Þorsteinn
síðari þátt sinn um gamla þjóðlega
leiki og íþróttir, en hann haíði
umsjón með tveim sýningum, sem
haldnar voru í Bretagne í
Frakklandi og á 20. Landsmóti
UMFÍ árið 1990. Fyrri þáttur
birtist í 4. tbl. Skinfaxa 1990.
Er hér var komið sögu liöfðu
glímumennirnir frá Islandi sýnt
fjölmarga gamla íslenska leiki fyrir
franska áhorfendur. (4. tbl. Skinfaxi
1990.) Næst voru ýmisfangbrögðtekin
til sýningar.
Fangbrögð
Hryggspenna
Iðkendur brjóta hver annan á bak aftur
án bragða og er það tekið fram. Sleppt
tökum,stöðvað. Iðkendurtakasérstöðu,
tveir og tveir andspænis hvor öðrum,
grípa yfir bol hvors annars með
krumlutökum upp um herðablöð; stíginn
glímustígandi. Sóttglímubrögð. (Tekið
fram að í þessum fangbrögðum séu
tekin öll sömu brögð og í glímu og sá
tapi sem snerti völlinn með öðrutn
líkamshlutum en iljum.)
Ást við í axlartökum
Hverjir tveir taka sín ákveðnu brögð.
Sleppt tökum, stöðvað.
Iðkendur ganga saman tveir og tveir,
taka tök með hægri hendi í hálsmál
andstæðings og vinstri í hægri ermi
hans ofan olnboga.
Sækjandi má taka tök með hægri hendi
í hálsmál andstæðings og vinstri í hægri
ermi ofan olnboga. Sækjandi má taka á
líkama viðfangsmanns hvar sem hann
vill og sækja brögð með höndum jafnt
sem fótum og mjöðmum sem í glímu.
Sá vinnur sem stendur í fætur uppréttur,
hinn liggur. Sýnd t. d. þessi brögð;
1) hnykkurinn, 2) slegið í hnésbót - v.
hendi upp í v. holhönd h. handar og
andst. hnykkttil hægri, 3) handklofbragð
4) skessubrögð.
Buxnatök
Sleppt tökum, stöðvað. Iðkendur grípa
hverannan buxnatökum, stígaogeigast
við. Kveðjast og ganga af svæðinu.
(Glímumenn báru glímubelti
innanklæða og voru í glímubúningum,
þeir gátu því fljótlega hlaupið inn á
svæðið og numið staðar í tveim röðum.
Meðan þeir bjuggu sig var sagt frá
bændaglímu.)
Keppt í nútíma glímubúningum. Að
keppni lokinni röðuðu glímumenn sér
upp þversum á svæðinu. gegnt
áhorfendum. Fánakveðja. Gengið af
svæðinu.
28
Skinfaxi