Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1991, Síða 29

Skinfaxi - 01.02.1991, Síða 29
í Þ R Ó T T I R Bitaleikir Á 20. Landsmóti UMFÍ, sem haldið var 12.-15. júlí 1990, hlupu tveir frábærir fimleikamenn að bjálkahúsi, sem var eftirlíking af baðstofu í bóndabæ fyrrum. Þulur kynnti bjálkahúsið og þá sérstaklega skammbita (þverbita) þess og sagði frá leikjum (bitaleikjum), sem leiknir voru á bitum sem þessum. (T. d. taldi sr. Flallgrímur sálmaskáld Pétursson sig hafa iðkað þá í æsku og nefnirþrjá.ekkiþáléttustu.íleikjavísum sínum.) Fimleikamennirnir, sem klæddir voru þjóðbúningum, léku síðan af fjöri, öryggi og styrk nokkra bitaleiki. Var annar bóndi í bæ sínum, en hinn gestur. Tóku þeir að metast um færni í bitaleikjum og sýndu hvert bitauppkastið af öðru. Luku þeir metingnum með því að hanga báðir á ristum. Ef unnt á að vera að sýna bitaleiki þarf að hafa t i lkippi legan bita. I leikfimissölum er unnt að nota jafnvægisslá. Eftirlíking af baðstofu verður óvíða smíðuð til bitaleikja. Má því grípa til sömu ráða og gert var í verbúðum, þar sem bitaleikir voru iðkaðir. Tveir eða fjórirvermenn tóku rá á axlir sér. Stóðu tveir og tveir andspænis hver öðrum. Myndin sýnir hvernig búa má bitaiðkendum slíka rá eða bita og tveir eða fjórir bera hana á öxlunum. Á öxl þar sem ráin hvílir er rétt að koma fyrir þófa eða sessu. Leikmenn klæddust venjulegum ígangsfötum og voru menn meira að segja í treyju eða vesti, því að eitt atriði í einni “listinni” var að klæða sig úr þessunr plöggum. Grip á bita: Bitinn er að minnsta kosti í kollhæð. Horft á bitann þveran nema að annað sé fram tekið. Tekið er upp um efri brún bitans báðum höndum, annað hvort þá sem nær er andlitinu eða fjær eftir því sem mælt er fyrir um. Þegar tökum er náð, verður iðkandinn að stökkva upp með því að spyrna í gólf eða standa í fætur og vega sig upp. 1. Mismunandi grip á brún bita a) Hoffmannsuppkast eða bændaupp- kast (Hoffmanns- eða bændaupphlaup): Með sitthvorri hendi er tekið báðum megin bita, það er að segja skágrip. ZftZZflC w I b) Sveinauppkast (Sveinaupp- hlaup):”Báðar hendur utan”. Tekið er með báðum höndum á aðra brún bita sem fjær er iðkanda, það er að segja nteð undirgripi. --*— c) Þrælauppkast eða kotungsuppkast (Þræla- eða kotungsupphlaup): “Báðar hendur innan.” Tekið er með báðum höndum á aðra brún bita, sem nær er iðkanda, það er að segja yfirgrip. y*>á.£ e JCnfc ivtt&eutri Mynd af bita Hér á eftir fer lýsing á 10 bitaleikjum (bitalistum, bitauppköstum). Staðan: Staðið í báða fætur og gripið upp um bitann. Staðið, horft ábita þveran. Hann gripinn yfirgripi. Fótum lyft inn milli arma og fótleggjum brugðið upp um bita. Bak veit niður, tökum handa sleppt svo hangið er á fótum, bitinn í hnésbótum. 1 þessari höngu skal klæða sig úr tilteknum bolklæðum. Vegið upp að nýju og náð gripum á bitanum. Farið niður í upphafsstöðu. 3. Að fara á kjöl Úr stöðu án spyrnu, skal vega sig með yfirgripi upp á bita og leggjast þar endilangur, á grúfu eða upp í loft. Að þessurn atriðum loknum er farin sama leið til baka. \ \ 4. Sitjandinn rekinn upp undir bita Gripið með skágripi á bita og fótum brugðið upp um bita úr stöðu án spyrnu. Snúið sér við á bitanum svo hangið er Skinfaxi 29

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.