Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1991, Qupperneq 30

Skinfaxi - 01.02.1991, Qupperneq 30
I Þ R ÓTT R undirhonum á grúfu (bak að bita). Reka skal sitjandann þrisvar upp í bitann viðstöðulaust. Sama leið til baka í upphafsstöðu eða fótatökum sleppt og stokkið niður. 5. Aö fara í gegnum sjálfan sig Staðið og snúið þvert á bita og hann gripinn yfirgripi í axlarbreidd. Fótum kastað án spyrnu milli arma aftur yfir höfuð og þeir látnir síga svo langt sem unnt er, farið til baka í upphafsstöðu. Trfo .W \ w 6. Aö sækja á bita Lagður er smáhlutur ofaná bita, t.d. lykill. Sá sem sækir, á að taka hlutinn (sækja hlutinn) með munninum. Ath. að Olafur Davíðsson tekur fram að fáir séu svo færirað burðum að þeirgeti sótt á bita, ef þeir ætla sér að taka hlutinn, sem sækja á af sömu brún og þeir hafa grip handa á bitanum. Er þvf betra að hafa handagrip á bitabrúninni sem snýr móti þeirri semætlunineraðtakahlutinn af (undirgrip). Staðið, snúið að bita, svo að iðkandinn hafi hann þveran fyrir sér og gripið upp um efri brún hans með undir- (sveinauppkast) eða yfirgripi (þrælauppkast) eftir því sem mælt er fyrirum. Iðkandi vegi sig upp áhandafli einu saman. II u 7. Aö fara á bita (Bitahlaup) Iðkandinn vegi sig með handafli einu saman upp á bitann með yfirgripi og I) sest á hann þveran, 2) sest á hann langsum, 3) lagst á grúfu, 4) Iagst á hann uppí loft. - Farið niður í upphafsstöðu. Bitabrún gripin sem í upphafi og iðkandinn lyftir sér upp í beina arnta, sígur niður í höngu og í réttstöðu á gólfi. 8. Höngur II A. Hangið á höngu Eftir að iðkandi af handafli eingöngu hefur lyft séráyfirtaki eða undirtaki svo að haka nemur yfir bitabrún, er henni krækt innyfir við brúnina og gripum sleppt. Hikað. Bitinn gripinn. Höku lyft af brún og stokkið niður. u B. Gengið á ristum Iðkandi hangir á bita á gripum beggja handa,meðyfirgripi, axlabreiddámilli gripa. Afeiginafli lyftirhann fótum þar til hann getur rennt ristum inn yfir bitabrún. Sleppir tökum svo að höfuð sígur í átt að gólfi. Iðkandi, sem liefur náðöruggum gripum á bita meðristum, færir sig, á ristagripum til hægri eða vinstri eftirbrún bitans um þveran rann. Lyftir sér upp, grípur bitann, sleppir ristatökum og stekkur niður. 9. Hringsveifla um bita Staðið og horft á bita þveran, gripið báðum höndum upp um efri brún hans með undirgripum. Með eigin afli er fótum og bol sveiflað upp fyrir bitann án snertingar, áfram yfir fyrir hann, gripum sleppt og lent í upphafsstöðu. Hvorki snertar sperrur né skammbiti, nema hvað gripið var í upphafsstöðu upp um brún bita. 10. Klukka-aösteypaklukku Staðið og horft á bitann þveran, gripið báðum höndum upp um brún bita með yfirgripum. Fótum sveiflað yfir höfuð og undir bitann, hnésbótum krækl yfir hann. Handtökum sleppt. Hangið á bitanum, efri brún hans í hnésbótum. Sveiflað aftur á bak og áfram. Sveiflurnar auknar, þar til hnésbótar- krækjurnar eru lausar af bitanum og fætur sveiflast til stöðu á gólfi. Enginn skyldi halda, að ég hafi safnað þessum leikjum. Þeirra hefi ég aflað mér, einkum úr Ieikjasafni Ólafs Davíðssonar (Islenskar gátur, þulur og skemmtanir. Kaupmannahöfn 1888- 1892, bls. 97-203). Til þess að setja upp sýningará leikjum, glímu og öðrum fangbrögðum, þarf að gæða þær tilbreytingum, til að mynda með því að syngja þjóðlög og stíga þjóðdansa. Sé þessu öllu raðað saman og það tengt af smekkvísi, þaulæft og borið fram á sviðið af sny rtimennsku, þá munu þessar þjóðlegu arfleifðir njóta sín, áhorfendum og sýnendum til ánægju. .. Q. vTTCT" /l\ U U 30 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.