Skinfaxi - 01.02.1991, Qupperneq 32
F E L 0 G
Skagamenn ungmennafélagar á ný
Ný unginennafélögin
spretta nú upp eins og
gorkúlur. Þrjú ný félög
voru stofnuð árið 1988,
Umf. Fjölnir í Reykjavík,
Umf. Óðinn í Vest-
amannaeyjum og Umf.
Akureyrar á Akureyri.
Nú finnast ekki nema sex
Jjéttbýlis-kjarnar á
landinu |jar sem ekki er
ungmennafélag starfandi.
Fimmtudaginn 14. febrúar
síðastliðinn var enn eitt
ungmennafélagið stofnað
Umf. Skipaskagi á Akranesi.
Um 60 Skagamenn mættu á
stofnfundinn auk fulltrúa frá
Ungmennafélagi Islands.
Formaður Umf. Skipaskaga
var kjörin Ingibjörg Óskars-
dóttir, en aðrir í stjórn voru kjörin:
Viihjálmur Gíslason, Kristleifur
Brandsson, Sigurveig Runólfsdóttir og
Rúnar Óskarsson. Formaður UMFI,
Pálmi Gíslason færði félaginu
peningaupphæð að gjöf ásamt sögu
UMFÍ, Oaggi og dagbók.
Á Akranesi var fyrst stofnað
ungmennafélag 23. janúar árið 1910,
Umf. Akraness og var það eitt af
stofnfélögum Ungmennasambands
Kjalarnesþings (UMSK), sent stofnað
var árið 1922. Talið er að þetta félag
hafi verið innan UMSK allt til ársins
1931, en árið 1937 mun það hafa hætt
allri starfsemi. Ungmennafélagið
Skipaskagi varsvostofnaðárið 1951 og
það starfaði allt til áramóta 1978-79.
Það félag sá um framkvæmd 15.
Landsmóts UMFÍ 1975 á Akranesi
ásamt Ungmennasambandi Borgar-
fjarðar.
Áttum ekki von á svona
mörgum
Ólafur Þórðarson, sem var formaður
Umf. Skipaskaga er félagið var lagt
niður, er einn af stofnfélögunum hins
nýja félags. Hann var spurður hvað
honum væri nú efst í liuga er nýtt félag
væri stofnað með sama nafni og gamla
ungmennafélagið sem lagðist niður.
„Ég er mjög ánægður með að hér á
Akranesi skuli ungmennafélag nú
loksins vera komið í gang aftur. Við
erum búin að berjast við að setja félagið
á fót annað slagið síðustu 15 árin, en
áhuginn hel'ur ekki verið það mikill að
samstaða Itafi náðst um stofnun eða
endurvakningu á félaginu.
Ég átti alls ekki von á að svona margir
kæmu á stofnfundinn. Ég gerði mér
vonir um að 30-40 manns kæmu, en það
er geysilega ánægjulegt að sjá hér 60
manns og ég vona að þessi áhugi sé
aðeins byrjunin á öðru og meira,” sagði
Ólafur.
Aðspurður sagðisl Ólafur boðinn og
búinn lil að veita stjórninni aðstoð ef til
hans yrði leitað, en hann sagðist vera
orðinn allt of gamall til að sinna
stjórnunarstörfum. Það væri betra að
yngra fólkið bæri ábyrgð á starfinu.
Ungmennafélag skal það
vera heiliin
Ingibjörg Óskarsdóttir, nýkjörin
formaður var spurð hvað hal'i orðið til
þess að ráðist var í stofnun ungmenna-
félags á Skaganum.
„Fyrir það fyrsta hefur Ólafur haldið
uppimerkinualvegfráþvígamlafélagið
leið undir lok og við leituðum fljótlega
til hans til skrafs og ráðagerða. Við
könnuðum hvort einhver áhugi væri og
héldum undirbúningsfund og þarmættu
um 15 manns. Við leituðum til UMFI
og fengum liðsinni þar á skrifstofunni.
Upphaflega var ætlunin að stofna
frjálsíþróttadeild, og Landsmótin hafa
löngum heillað og við ákváðum að
félagið skyldi verða ungmennafélag.
Nú síðan ákváðum við að láta reyna á
það hvað áhuginn væri mikill og
boðuðum til stofnfundar. Ég er mjög
ánægð með fundinn og átti ekki von á
næstum því svona mörgum.”
Hefur nýtífélag möguleika á ai) þrífast
á stað sem mörgfélög erufyrír?
„Já ég hef trú á því, ég er bjarlsýn á
starfið og ég held að við eigum ekki
32
Skinfaxi