Skinfaxi - 01.02.1991, Síða 34
Vísnaþáttur
Heilir og sælir lesendur góðir. Ljóð og
vísurhafa um langt skeið yljaðmönnum
um hjartaræturnar. Ljóðlistin er
íslendingum í blóð borin og má nú sjá
mikla uppsveiflu íþeirri listhérá landi.
I skólum landsins er nú rekin ákveðin
menningar- og listastefna þar sem börn
og unglingareru hvattir til að reyna sig
við vísna- og Ijóðagerð.
A þingum héraðssambandanna hefur
ljóðlistin löngum blómstrað og vísur af
ýmsum gerðum séð dagsins Ijós. Hér á
eftir fer vísa sem Jóhannes
Sigmundsson, fyrrum formaður HSK,
setti á blað þegar hann sá mynd af
þáverandi formanni HSK og formanni
frjálsíþróttanefndar HSK. Eins og
mönnum er í fersku minni átti HSK
miklu fylgi að fagna á síðasta ári og því
yl’ir mörgu að gleðjast.
Þásendi égfyrripart til SigurðarGeirdal
bæjarstjóra í Kópavogi og skora á hann
og aðra, sem hafa áhuga, að botna og
senda til Skinfaxa.
Félagsást
Aköfvon og vœnting sjást
á vörum þeirra beggja.
Feikna heit erfélagsást
formannanna beggja.
Jóhannes Sigmundsson
Til Sigurðar Geirdal bæjarstjóra í
Kópavogi
Kópavogsins kappinn snjalli
komst í stólinn rétta
/ /rak Saddam ýmsa menn
œru og lífi rúði
Kosningaskjálftinn skelfir marga
skyldu menn vinna eða tapa
Með góðum kveðjum,
Sigurður Gíslason
Björn Jónsson, fyrrverandi formaður HSK, og
ValgerðurAuðunsdóttir.formaðurfrjálsíþróttanefndar
HSK, fagna þeim sigrum sem unnust á árinu. HSK
vann 1. deildina í frjálsum íþróttum og var i 2. sæti
á 20. Landsmóti UMFÍ.
Kynning á starfsemi UMFÍ færist í vöxt.
Þorsteinn Geirsson íþróttafræöingur, fremst t.h., ásamt nemendum úr Fjölbrautarskólanum við Ármúla.
Nokkuð hefur verið um að ýmsir hópar
óski eftir því að koma í heimsókn í
VesturhlíÖ, hús Ungmennafélags
Islands í Reykjavík og fræðast um
starfsemi samtakanna.
Mánudaginn 21. janúar s.l. kom 14
manna flokkur sveina og meyja úr
Armúlaskóla í bækistöðvar UMFI á
Öldugötu 14. Sigurður Þorsteinsson
framkvæmdastjóri UMFÍ skýrði í
grófum dráttum frá inntaki kjörorðanna
um ræktun lýðs og lands. Hann sagði
frá Félagsmálaskóla UMFÍ og lagði
áherslu á mikilvægi þess að geta tjáð
skoðanir sínar og komið hugðarefnum
sínum á framfæri. Hann sagði að
félagsþroski væri mjög misjafn eftir
landssvæðum og að þar sem félagslegur
þroski væri mikill þar væri starf
félaganna gott. Hann ræddi um að sá
sem væri ekki alveg eins og allir hinir,
t.d. feitari eða á annan hátt frábrugðinn,
ætti líka að fá tækifæri til að vera með
og njóta sín í starfinu. Nauðsynlegt
væri að miða starfið við getu hvers og
eins með það að markmiði að sem flestir
gætu tekið þátt í því. Foreldrastarf
sagði hann að væri mörgum félögum og
deildum lífsnauðsyn og benti jafnframt
á að foreldrafélög og stjórnir yrðu að
hafa gott samstarf sín á milli, ellegar
gæti starfsemi félags eða deildardalað.
Krakkarnir sögðust hafa mikinn áhuga
á að komast á félagsmálanámskeið og
einhverjir ætla að mæta til leiks þegar
næstu námskeið hefjast.
34
Skinfaxi