Skinfaxi - 01.02.1991, Qupperneq 35
UMHVERFISMAL
„Fjöldaþátttaka í íþróttum og
verndun íslenskrar náttúru”,
eru meöal stefnumarkmiða stjórnar UMFÍ
Stjórn UMFÍ og framkvæmdastjóri. Taliö f.v. fremri röð: Siguröur Þorsteinsson, framkvst., Dóra
Gunnarsdóttir, Sigurbjörn Gunnarsson, Magndís Alexandersdóttir. Aftari röð f.v.: Flemming Jessen,
Sæmundur Runólfsson, Matthias Lýðsson, Jóhann Ólafsson, Þórir Flaraldsson, Þórir Jónsson, Pálmi
Gíslason og Kristján Yngvason.
Ungmennafélag íslands hélt sinn
7. stjórnarfund 25. og 26. janúar í
Foldaskóla á félagssvæði
Ungmennafélagsins Fjölnis í
Grafarvogi. Fjölmörg málefni
voru tekin til umræðu. Mikil
áhersla var lögð á stefnumótun
hreyfingarinnar.
Iþróttir eru og verða stór þáttur í starfi
ungmennafélaganna á næstunni, en
meiri áhersla verður lögð á
almenningsíþróttir og breiddaríþróttir
fyrirbörnogunglinga. Fremurerstefnt
að því að auka fjöldaþátttöku, en að
stefna að toppárangri barna og unglinga.
Umhverfismál hafa ntikið verið til
umræðu upp á síðkastið, en hreyfingin
hefur löngum látið þau mál lil sín taka
og er skemmst að minnast átaksins
„Tökum á, tökum til”, þegar ungmenna-
félagarhreinsuðuóOOOkílómetrasvæði
og um 400-500 tonn af rusli söfnuðust.
Umhverfismál munu verða æ stærri
þáttur í starfi hreyfingarinnará næstunni
og er enn á ný stefnt að því að hefja
stórátak íumhverfisvernd. Átakið hefur
verið nefnt „Fósturbarnið” og markar
það upphaf meira starfs á þessum
vettvangi.
Á 27. sambandsráðsfundi UMFÍ sem
haldinn var sl. hausl gerðu
ungmennafélagareftirfarandi samþykkt
til að stuðla að aukinni umhverfisvernd
í landinu:
„27. sambandsráðsfundur UMFÍ,
haldinn 2.-3. nóvember 1990,
samþykkir að stefnt skuli að því að
hvert einstakt ungmennafélag f landinu
taki að sér „fósturbarn” úr náttúru
landsins. Fósturbarnið verði tekið í
umsjáfyrstu helgi íjúní 1991 og standi
yfir í þrjú ár.
Hvert félag velur sér fósturbarn
sein getur verið:
Fjara sem hreinsuð er reglulega.
Vegarkafli sem hreinsað er
meðfram.
Land til uppgræðslu.
Gróðursetning í ákveðið land-
svæði.
Hefting foks eða annað sein
landinu kemur til góða.
Strandamenn viö fjöruhreinsun þegar átak UMFÍ „Tökum á, tökum til" var í fullum gangi.
Skinfaxi
35