Skinfaxi - 01.02.1991, Qupperneq 36
UMHVERFISMAL
íslenska jurtin Melgras stöövar sandfok. Víöa má verja gróöursvæði fyrir ágangi foksands meö því aö
koma upp öflugu Melgrasbelti.
Tökum aö okkur
„fósturbörn” úr
náttúru landsins
Mörg ungmennafélög hafa lengi haft
umhverfisvernd á stefnuskrá sinni og
vonast er til að sem flest þeirra 245
ungmennafélaga, sem ílandinueru, taki
þátt í átakinu. Leitað verður eftir
samningum við sem flesta aðra aðila,
s.s. opinbera aðila, stofnanir, skóla,
félagasamtök. landeigendur og
áhugamenn.
Nú þegar hafa nokkur héraðssambönd
og félög ákveðiö að taka þátt í
umhverfisverndarátakinu og sum eru
búin að taka að sér ák veðið „fósturbarn”.
Gert verður sérstakt merki fyrir átakið
og verða “fósturbörnin” merkt
sérstaklega.
Islendingar eiga fallegt og hreint land,
en almenningurgerirsérekki nægilega
vel Ijóst mikilvægi umhverfisverndar
og hollrarhreyfingar. Það uppeldislega
gildi sem foreldrar geta veitt börnum
sínum, bæði hvað hreyfingu og
umhverfisvernd varðar.ermikið. Þegar
vinnudagurinn er langur og báðir
foreldrar vinna úti finnst fólki æskilegt
að fjölskyldan geti átt sameiginleg
áhugamál, í sameiginlegum frístundum.
Með því að taka börnin með og kenna
þeim holla hreyfingu og umgengni við
náttúruna er grunnur lagður að
heilbrigðu lífi og umhverfisvernd
framtíðarinnar.
Það er ljóst að sú forysta sem UMFÍ
hefurhaft í umhverfisverndarmálum er
gífurlega mikilvæg og vonandi mun
verndun lands og lýðs verða mönnum æ
ofar í huga er fram líða stundir.
Gamlar heimildir berast UMFÍ aö gjöf
Fyrir nokkru voru Ungmennafélagi Islands
færð gömul skjöl að gjöf. Skjöl sem varpað
geta Ijósi á starfsemi hreyfingarinnar í
árdaga. Það er okkur mikils virði þegar
gamlir ungmennafélagar eða afkomendur
þeirra sjá hvað það hefur mikla þýðingu að
unga kynslóðin geti kynnt sér starf og stefnur
eldri kynslóða. Það var Kristrún
Steindórsdótlir.dóttirSteindórsBjömssonar
frá Gröf í Mosfellssveit sem færði UMFÍ
þessa gjöf eftir föður sinn.
„Pabbi bjó hjá okkur, mér og manninum
mínum, Guðmundi Kjartanssyni jarð-
fræðingi, síðustu mánuðina áður en hann
lést 14. febrúar 1972. Hann bað um að
ýmsum skjölum yrði komið á ákveðna staði
ogþarámeðal til Ungmennafélagsíslands,”
sagði 76 ára dóttir Steindórs. Kristrún, er
ritstjóri Skinfaxa hitti hana að máli þegar
hún var að passa litla langömmustelpu.
Steindór fæddist 3. maí 1885 á Hvanneyri.
Hann var menntaður íþróttakennari frá
Danmörku og kcnndi í Barnaskólanum í
Reykjavík. Hann þjálfaði lengi fimleika-
flokkahjálRogvarritstjóri Iþróttablaðsins.
Eftir að hann hætti kennslu starfaði hann
sem efnisvörður hjá Landsíma Islands um
margra ára skeið.
í skjölum þeim sem Kristrún færði UMFÍ
mám.a. finnafyrstutölublöðFjórðungsblaðs
Sunnlendingafjórðungs frá árinu 1909.
Blaðið var handskrifað og skrifaði Steindór
það sjálfur.
Á þingi UMFÍ 1908 var landinu skipt í
fjórðunga í því skyni að auðvelda samstarf
einstakra ungmennafélaga. Sérstök
fjórðungsstjórn var kjörin, en Steindór varð
ritari fjórðungsstjórnar Sunnlendinga-
fjórðungs 1916. Þegarfjórðungssamböndin
liðu undir lok um 1922 voru héraðs-
samböndin stofnuð.
Steindór var mjög listrænn maður, hann
skrautritaði og teiknaði og í safninu má
finna skissur að merki UMFÍ.
Foreldrar Steindórs bjuggu í Grafarholti, en
Grafarholtsfólkið var mikið ungmenna-
félagsfólk, var allt í Ungmennafélaginu
Aftureldingu. Guðrún systirBjörns starfaði
mikið innan hreyfingarinnar og var ritari
UMFÍ 1921-1924.
Sólveig Heimisdóttir hlustar meö athygli á Kristrúnu
langömmu, þegar hún segir henni frá því hvernig
langalangafi hennar skrifaöi og fjölritaöi
Fjóröungsblaö Sunnlendingafjóröungs.
„Ég held að systkinin hafi öll verið í
ungmennafélaginu frá upphafi og ég man
vel eftir þegar ýmsir fundir og leiksýningar
fóru fram í Grafarholti”, sagði Kristrún að
lokum og þakka ég henni góðar viðtökur.
36
Skinfaxi