Skinfaxi - 01.12.1994, Side 10
Formaður Ungmennafélags Akureyrar:
Valdi ungmennafélagið
og missti vinnuna
Sigurður Magnússon formaður Ungmennafélags Akureyrar.
„Vinnuveitandi minn setti mér úrslita-
kosti. Annaðhvort hætti ég í ungmennafé-
laginu eða hætti hjá honum. Eg valdi ung-
mennafélagið og missti vinnuna," sagði
Sigurður Magnússon formaður Ungmenna-
félags Akureyrar í viðtali við Skinfaxa.
Saga sú, sem Sigurður hefur að segja, er
óneitanlega dálítið sérstök. Hann tók sæti í
stjórn Umf. Akureyrar fyrir sex árum og
starfaði í henni þar til í febrúar sl. en þá
tók hann við formennsku félagsins.
„Vinnuveitandi minn sagði mér þá
strax, að honum litist nú illa á það. Hann
vildi að maður sem væri í vinnu hjá sér
hefði engin áhugamál önnur en vinnuna.
Ég svaraði því til, að ég hefði alltaf haft
mín áhugamál og stundað mínar íþróttir og
það hefði ekki bitnað á vinnunni hingað til.
Hann sagði að það pirraði sig að ég væri
orðinn formaður og líklega væri ég að
hugsa meira um ungmennafélagið á daginn
heldur en verslunina."
Eigandinn ítrekaði það aftur við Sigurð
sl. vor og í sumar að hann yrði að velja á
milli verslunarinnar og ungmennafélags-
ins.
„Ég neita því ekki að það var talsvert
um hringingar í mig vegna Lýðveldis-
hlaupsins, þegar það fór af stað,“ sagði
Sigurður. „Það virtist vera kornið sem
fyllti mælinn og vinnuveitandi minn sagði
við mig að nú skyldi ég velja á milli vinn-
unnar og ungmennafélagsins."
Sigurður sagðist hafa verið búinn að
gera ýmislegt til að miðla málum áður en
til þessa uppgjörs kom. Meðal annars hafi
hann sagt stjórnarmönnum ungmennafé-
lagsins að þeir mættu ekki hringja í hann
og ekki koma til hans í verslunina. En það
dugði ekki til.
Sigurður þurfti ekki að ganga lengi at-
vinnulaus. Hann fékk vinnu sama kvöldið
og hann hætti,- hjá helsta samkeppnisaðila
fyrri vinnuveitanda!
„Að öðru leyti en þessu hafði ég það
mjög gott á mínum fyrri vinnustað og sam-
starf mitt og vinnuveitandans var mjög
gott. En við þessa afarkosti gat ég ekki
sætt mig.“
Líflegt starf
Starf Umf. Akureyrar hefur verið mjög
líflegt og hefur verið bryddað upp á ýms-
um nýjungum. I sumar var stofnuð hjóla-
deild innan félagsins, sem skipulagði dags-
ferðir, svo og lengri ferðir fyrir þá sem
þess óskuðu.
„Mér datt í hug að finna eitthvað sem
ekki væri til staðar hér í bænum og þá varð
hjóladeildin fyrir valinu," sagði Sigurður.
„Einnig hef ég áhuga á að koma hér upp
aftur þríþrautadeild. Við héldum fyrstu þrí-
þrautakeppnina hér á landi 1988 og vorum
einnig með fyrsta Islandsmótið tveimur
árum seinna. En svo fluttist þjálfarinn okk-
ar, sem er hollenskur, af landi brott og þá
datt þetta starf upp fyrir. Þó eru haldnar
þríþrautakeppnir annað slagið á Ólafsfirði,
í Mývatnssveit og fyrir sunnan.“
Starf Umf. Akureyrar er nær eingöngu
byggt upp á frjálsum íþróttum og sagði
Sigurður að mikill áhugi væri fyrir þeim.
„Við erum með íþróttakennara sem hef-
ur verið hjá okkur í þrjú ár. Nú er hann á
förum til Svíþjóðar í framhaldsnám,
þannig að okkur vantar góðan þjálfara fyrir
næsta sumar. Við erum nú í 2. deild, en 3.
deild hefur verið lögð niður, bæði að okkar
ósk og annarra.“
Umf. Akureyrar sendi að sjálfsögðu lið á
landsmót UMFI á Laugarvatni í sumar.
„Okkur hefur gengið nokkuð vel á mótum
og vorum með eina 15 Islandsmeistaratitla í
ár í frjálsum íþróttum. Við eigum nú fimm
krakka í FRI 2000 hópnum, sem er úrvals-
hópur fyrir landsliðið. Unglingaliðið okkar
er öflugt, enda höfum við lagt höfuðáherslu
á uppbygginguna í yngri flokkunum.“
Umf. Akureyrar og UMSE hyggja nú á
aukið samstarf um æfingar og eins til að
senda sameiginlegt lið í bikarkeppni. Þá
10
Skinfaxi