Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1994, Page 16

Skinfaxi - 01.12.1994, Page 16
Umf. Tindastóll gerir það gott í getraununum: Ómetanleg fjáröflun - segir Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri „Getraunirnar hafa gengið mjög vel hjá okkur. Þetta er ómetanleg fjáröflun fyrir félagið,“sagði Olafur Jónsson fram- kvæmdastjóri Ungmennafélagsins Tinda- stóls í Skagafirði. „Eg fór út í að selja hlutabréf, þetta nýja kerfi hjá Getraunum. Það er mjög sniðugt fyrir þá sem telja sig hafa lítið vit á að „tippa“ því það er kannski einhver einn að- ili sem gerir þetta fyrir stóran hóp manna. Þetta gefur því öllum kost á að vera með. Hvert bréf kostar 500 krónur og af því fær félagið 25 prósent. Þetta hefur gefist mjög vel. Þegar ég byrjaði á þessu borgaði ég út gefna vinninga tvær fyrstu vikurnar. í fyrstu voru þetta aðeins fá ein bréf, en þeim fór fljótlega að fjölga. Þriðju vikuna náði ég 13 réttum og gat borgað 6000 krónur út á 500-kallinn. Þá tók salan stórt stökk og við fjórfölduðum söluna á þrem vikum. Það er ólíklegasta fólk sem tekur þátt í þessu. Nú ætlum við að gera enn betur heldur en í fyrra, bjóða fólki þetta heima og á fleiri vinnustöðum en áður. Þetta kostar náttúr- lega vinnu, en hún skilar sér margfalt til baka. Þetta er besta fjáröflunin sem nokk urt félag getur fengið. Við erum ákveðnir í að fara af stað með myndarlegt átak núna til að auka söluna.“ Olafur sagði að Getraunir hefðu skilað félaginu um 500 þúsund krón um það sem af væri þessu ári og þar munaði mest um sölu hlutabréfanna. „Við notum þessar tekjur til að fjár- magna starf yngri flokkanna í knattspyrn- unni. Það er aldrei svo að æfingagjöld dugi til að reka þetta, því þetta er dýrt, þátttaka í mótum, ferðir o.s.frv. Landsbyggðarfélögin búa við allt annan kost heldur en hin í þétt- býlinu. Allar okkar ferðir á mót kosta mikla peninga. Það sem getraunirnar gefa af sér er því mikil búbót fyrir okkur. Getraunir þurfa að koma með nýjungar öðru hvoru, svo sem hlutabréfin. Slíkt hjálpar mjög til við söluna. Það er fullt af fólki sem vill styðja starfsemi félagsins, en gerir það kannski ekki því það veit ekki al- mennilega hvernig það á að fara að því. Þama er það í senn að styðja við félagið og á von á að vinna eitt hvað.“ JÓLAGETRAUN SKINFAXA 1. Hvaöai fcmampyrawUÖ lékua ti! úrslita í "Mjólfcmrtoikarmttm" Bifcarfceppmi KSl 1993? 2. Hver var vaMmna tomattspynnraniiaömr ársims 1994 f Svíþjóö? 3. Hvaöa tomattspynmialiö þjálffar Iimgi Bjönm Altoertssoim á imsesta fceppimistímatoili, 199S? 1. verölaum: Mltre fótbolti 2. verðlaua: Mitre körfubolti 3. verölanm: Mitre sefingataska SVÖR SBNBIST UNMBNNAFfiLAGI ISLANBS, FYRIR 20. 01. 1995, FEULSMOLA 26, 108 REYKJAVfK. 16 Skinfcuci

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.