Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1994, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.12.1994, Blaðsíða 13
Landsmótin eiga að verafyrir ungmennafélaga, segir m.a. í grein Þóris. Breytt fyrirkomulag Mín skoðun er sú, eftir reynslu tveggja síðustu móta, að við skipulag landsmóts megi ekki að óbreyttu reikna með því að áhorfendur greiði upp kostnað við móts- haldið. Veðurfar,. framboð af skemmtun- um, fjárhagur fólks og aðrar aðstæður ráða svo miklu um aðsókn að mótunum að ekki er réttlætanlegt, eftir á séð, að gera ráð fyr- ir miklum fjölda gesta, heldur sé þar um að ræða ánægjulega viðbót sem þarf þó að vera viðbúnaður til að þjóna. Jafnvel má velta því upp hvort einfaldara sé, og væn- legra til árangurs, að hafa engan aðgangs- eyri að landsmótum, en afla fjár með sölu nauðsynja, tjaldstæða og annars slíks, því reynsla síðasta sumars sýnir að mæting á samkomur þær, sem seldur var aðgangur að, var mjög lítil, en aftur nokkuð góð á þær sem var frítt inn á. Að mínu mati má þó ekki draga of víð- tækar ályktanir af slæmri fjárhagsútkomu landsmótsins á Laugarvatni. Nefndin vann að því að draga úr kostnaði við mótið og varð víða nokkuð ágengt í þeim efnum. Á nokkrum sviðum hefði þó eflaust mátt halda betur að en þar var um lágar fjárhæð- ir að ræða. Kostnaður við mótið var nokkru meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þar munar mest um kostnað vegna ýmissa verklegra framkvæmda á Laugarvatni sem viðkomandi sveitarfélög hafa kostað á undanförnum mótum. Sveitarstjórn Laug- ardalshrepps stóð við allt sem um var rætt við hana en vegna óvenjulegrar stöðu mála á staðnum ræður hún ekki yfir t.d. landi og veitumannvirkjum. Þannig sá nefndin um salernismál, öflun viðbótar neysluvatns, raflagnir, sorphirðu og -förgun, merkingar og innkeyrslur á tjaldsvæði og bílastæði, svo eitthvað sé nefnt. Þessi kostnaður var að verulegu leyti fyrirsjáanlegur en reynd- ist talsvert meiri en áætlanir gerðu ráð fyr- ir. Ég tel þennan kostnað vera hluta þess sem það kostar landsmótshaldara að halda landsmót í dreifbýli, þ.e. utan stórra þétt- býliskjarna sern geta boðið upp á aðstöðu og hafa bolmagn til að kosta framkvæmdir að málum sem þessum. I framhaldi af þessu tel ég að nauðsynlegt sé að sá sem ætlar að taka að sér landsmót tryggi sér fyrirfram aðstöðu og aðstoð með samningi við sveitarfélög og aðra aðila þar sem mót- ið á að fara fram. Viðamikill undirbúningur Við undirbúning móts á borð við lands- mót UMFI er margs að gæta. Umfang íþróttakeppninnar sjálfrar er geysimikið. Til þess að hún geti farið vel fram þarf mikla og góða aðstöðu, mikið af hæfu og vönu starfsfólki og mikið af áhöldum. Margar keppnisgreinar sem láta ef til vill ekki mikið yfir sér eru býsna erfiðar og flóknar í undirbúningi og framkvæmd. Nægir þar að benda á að borðastærð í að leggja á borð er þannig að sníða verður borðplötur til þess, mikið af dýnum og á- höldum þarf fyrir fimleika og júdó, aðstaða verður að vera fyrir áhorfendur helst á öll- um keppnisstöðum o.s.frv. Iþróttamenn, fararstjórar og fylgifiskar þurfa allir sína aðstöðu til gistingar, búningaaðstöðu, fæði, bflastæði, auk annarrar þjónstu sem síst er talin eftir við undirbúning, en eykur að sjálfsögðu vinnu og kostnað. Þá þurfa fréttamenn sína aðstöðu og umsjón bæði fyrir mótið og á því sjálfu til að fréttir og frásagnir skili sér til þeirra sem ekki eru á staðnum. Sú krafa, að mótið sé glæsilegt, mótshöldurum og hreyfingunni til sóma, er eðlileg, en býsna frek á tíma og fé. Nú niá enginn skilja það sern hér að frantan segir á þann veg að ég telji þetta óþarft, eða sé að telja þetta eftir frant- kvæmdaaðilum, síður en svo. Þetta er at- riði sem þeir eiga að vita sem taka að sér að halda landsmót og verða að framkvæma þannig að sómi sé að. Niðurstaða mín eftir undirbúning og framkvæmd 21. landsmótsins í sumar er þó sú að hreyfingin sé kornin á mörk þess að mótið sé orðið of stórt í umfangi og um- sjón og tel ég að eftir þetta mót verði for- ystumenn hreyfingarinnar að skoða það vandlega hvert beri að stefna í landsmóts- haldi. Þar eru í raun aðeins tveir kostir fyr- ir hendi. Annar er sá að láta skeika að sköpuðu, í þeini merkingu að mótin fái að þróast og stækka eftir áhugasviði sam- bandsaðila UMFI hverju sinni, hugsanlega innan þeirra marka að framkvæntdaaðili geti haft smávægileg árhif á umfang móts- ins með ákvörðunum um sýningargreinar, lágmörk o.s.frv. Þetta er að mörgu leyti æskileg leið, en þó með þeim galla að hætt er við að erfitt verði að finna framkvæmd- araðila að mótunum ef þau stækka frá því sem nú er. Hin leiðin er sú að á vettvangi UMFÍ verði tekin meðvituð ákvörðun um umfang mótanna. Sú ákvörðun getur verið á ýmsan hátt, til stækkunar, ntinnkunar, til að auka hlut afreksfólks eða halda hinni almennu, opnu þátttöku. Mín skoðun er sú, eins og að frarnan segir, að mótin séu kontin á rnörk þess að vera framkvæmanleg, stærð- arinnar vegna. Ég tel því ekki grundvöll til að stækka þau frá því sem nú er, ekki síst vegna þeirrar aðstöðu og mannafla sem mótið útheimtir. Mér þykir hins vegar skoðunarvert að gefa mótshaldara hverju sinni að einhverju leyti frjálsar hendur með umfangið, að vissum skilyrðum fullnægð- um. Hér á ég við að t.d. í Borgarnesi, þar sem 22. Iandsmót UMFÍ verður haldið árið 1997, eru góð íþróttasvæði í sveitarfélag- inu, bæði fyrir hestaíþróttir og golf. Hvor- ugt var til staðar á Laugarvatni. Keppni í knattspyrnu karla hefur sett nijög niður frá því sem áður var, bestu lið- in innan ungmennafélaganna taka ekki þátt í mótinu m.a. af því að íslandsmeistaramót og bikarkeppnir KSI hafa verið í fullum gangi þó landsmót standi yfir. Ég tel að mótin setji talsvert niður við það að beslu íþróttamenn ungmennafélaganna í knatt- spyrnu taki ekki þátt í landsmóti, en eins og flestir vita er knattspyrna mest stundaða Skinfaxi 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.