Skinfaxi - 01.12.1994, Blaðsíða 39
Héraðsmót Hrafna-Flóka:
Glæsilegur árangur
íþróttafélagið Hörður á Patreksfirði hlaut bikar fyrir flest stig í 1.-6. sœti. Hér sjást á-
nægðir Harðarmenn, ásamt Magnúsi Schveving, fagna árangrinum.
Héraðsmót Héraðssambandsins Hrafna-
Flóka var haldið á Bíldudal 22.-24. júlí sl. í
frábæru veðri. Mótið tókst mjög vel, allar
tímasetningar stóðu eins og stafur á bók og
árangur keppenda var mjög góður. Meðal
annars voru sett þrjú héraðsmet.
Mótið hófst síðari hluta föstudagsins
með undanúrslitum í spretthlaupum. Móts-
setning fór svo fram klukkan 11 á laugar-
deginum. Héraðsmet voru sett í eftirtöldúm
greinum:
- 10 ára og yngri tátur ÍH í 4x100 boð-
hlaupi á tímanum 1:04,8 og bættu þær
gamla metið um 2,1 sek.
- Fríða Hr. Kristinsdóttir UMFT bætti
eigið héraðsmet í 800 metra hlaupi 11-12
áraum5,l sek., en hún hljóp á 2:43,1.
- Birna Hannesdóttir, IFB, bætti eigið
met í spjótkasti 13-14 ára um 2,53 metra,
en hún kastaði spjótinu 31.03 m.
- Linda H. Heiðarsdóttir, UMFT, bætti
einnig eigið met í spjótkasti 15-16 ára um
2,33 m. en hún kastaði 29.90 m.
í mótslok voru afhentir bikarar fyrir
bestan árangur karla og kvenna í aldurs-
flokknum 17 ára og eldri og hlutu þá Sig-
ríður Runólfsdóttir, ÍFB, en hún varpaði
kúlu 8,62 m. og Björgvin Karl Gunnars-
son, ÍH, sem hljóp 1500 metra á 4:50,1
mín. Þessir bikarar voru gefnir af þeim
heiðurshjónunum Hrafnhildi Agústsdóttur
og Ólafi Bæringssyni, sem hafa stutt ó-
tæpilega við bakið á íþróttafólki sýslunnar,
ásamt því að hafa keppt sjálf á yngri árum.
Einnig var afhentur bikar fyrir bestan ár-
angur í spjótkasti og hlaut hann Birna
Hannesdóttir, ÍFB. Hún kastaði spjótinu
31,03 metra, eins og áður sagði.
Hörður hlaut bikarinn
Nú var það nýmæli að afhentur var bik-
ar fyrir bestan árangur hjá 16 ára og yngri
og hlaut hann Catia Andrea 1H (10 ára og
yngri) en hún stökk 4,00 metra í lang-
stökki, sem er frábær árangur. Þessi bikar
er gefinn af gistiheimilinu Skrúðhömrum,
Tálknafirði.
Síðan kom að afhendingu bikarsins sem
beðið var eftir með hvað mestri eftirvænt-
ingu, en það er bikar sem afhentur er þvf í-
þróttafélagi sem flest stig hlýtur fyrir ár-
angur í 1.-6. sæti. Kom hann að þessu sinni
í hlut íþróttafélagsins Harðar á Patreks-
firði, sem hlaut samtals 571 stig. I 2. sæti
varð íþróttafélag Bílddælinga með 477,5
stig. I 3. sæti varð Ungmennafélag Tálkna-
fjarðar með 357 stig og í 4. sæti Ung-
mennafélag Barðstrendinga með 99,5 stig.
Að þessu sinni var afhentur nýr bikar sem
Þórsberg hf. Tálknafirði gaf, en íþróttafé-
lag Bílddælinga hafði unnið fyrri bikarinn
til eignar á síðasta héraðsmóti.
Bryggjuhamarslyfta
En ekki var eingöngu keppt í íþróttum.
A laugardeginum var keppt í einni grein í
keppninni um Vestfjarðavíkinginn og var
það lokagreinin. bryggjuhamarslyfta. Vakti
þessi keppni rnikla athygli mótsgesta.
Ekki var síðri uppákoma á sunnudegin-
um. Þá kom sjálfur Magnús Scheving
fljúgandi á svæðið og hitaði upp með
keppendum fyrir keppnina þann dag. Voru
menn vel heitir að lokinni þeirri upphitun
og árangurinn vafalaust enn betri, að
minnsta kosti hjá kvenfólkinu, þegar í Ijós
kom að Magnús myndi afhenda verðlaun
að lokinni hverri grein. Magnús vakti
mikla lukku hjá öllum og notaði tækifærið
við verðlaunaafhendinguna til að hvetja
keppendur til heilbrigðara lífernis. Að lok-
um var hann með nærri klukkutíma langa
dagskrá, sem var mjög skemmtileg. Hlífði
hann engum, en lét menn miskunnarlaust
taka þátt í gamninu.
Lauk svo þessu árangursríka og
skemmtilega héraðsmóti Héraðsssam-
bandsins Hrafna-Flóka.
Skinfaxi
39