Skinfaxi - 01.08.1995, Síða 5
í sumar var í annað skipti haldið Unglixrgalandsmót
UMFÍ, að þessu sinni á Blönduósi. Fjöldi héraðs-
sambanda og félaga mættu með keppendur á mótið og
tókst það í alla
staði ágætlega.
Fléraðssambandið
mitt, Hrafna-Flóki
mætti með stórair
hóp keppenda og
voru þeir búnir að
hlakka mikið til.
Sumir þeirra eldri
höfðu farið á mótið
á Dalvík og vissu
hvernig þetta gekk
fyrir sig en fyrir
yngri börnin var
þetta alveg ný
reynsla. Arangur-
inn hjá þeim var
síðan misjafn, sum lentu í verðlaunasæti og önnur ekki
en öll skemmtu þau sér konunglega. Að vísu var veðrið
ekki eins og best verður á kosið, en hver tekur eftir því
þegar svona gaman er.
Ég held að svona mót þar sem ekkert lágmark er sett
og allir geta verið með séu mjög hvetjandi fyrir
unglingana til þess að halda áfram í íþróttuna. Oft er
það þannig að börn sem hafa áhuga og gaman af íþrótt-
um en eru ekki í hópi þeirra bestu, hætta æfingum þegar
þau horfa á sömu krakkana fara ár eftir ár í skemmtileg-
ar keppnisferðir en komast aldrei sjálf með af því þau ná
ekki einhverju lágmarki. Svona mót eins og
Unglingalandsmótið getur spornað á móti þessari þróun,
því allir sem vilja geta verið með. Það að mótið er á
þriggja ára fresti gerir það svolítið sérstakt og gefur
samböndunum tíma til að safna vel fyrir ferðinni og fara
síðan með stóran hóp. Ef mótið væri á hverju ári myndu
samböndin fljótlega fara að takmarka fjölda þátttakenda
og aðeins þeim bestu leyft að fara.
Unglingalandsmótin eru líka tilvalin skemmtun fyrir
alla fjölskylduna. Ég fór á Blönduós með 9 ára gamla
dóttur mína og skemmtum við okkur mjög vel. Sú stutta
stundar æfingar í frjálsum íþróttum og er eitthvað í
fótbolta á sumrin en hún er ekki farin að keppa ennþá og
þá erum við komin að spurningu sem við þurfum að
taka afstöðu til. Hvað eiga börnin að byrja ung að
keppa? Það eru mjög misjafnar skoðanir á þessu máli og
hef ég mikið velt þessu fyrir mér. í íþróttakeimslunni sé
ég það að börnin eru alltaf að keppa, þótt ég brýni fyrir
þeim að ég sé ekki að láta þau keppa, heldur eigi þau að
vairda sig, þá keppa þau samt. T.d. í sundinu, ef þau
synda yfir laugina þá fara þau flest ósjálfrátt að keppa
við þann sem næstur þeim er og gleyma að vairda sig.
Þá hugsa ég, er þetta ekki eðlilegur þáttur í
uppvextinum, leyfum þeim bara að keppa! En svo sé ég
á íþróttamótum, allt niður í 7 ára gömul börn látin
hlaupa t.d. 800 metra þar sem áhorfendur með hrópum
og köllum reka þau áfram þannig að þau keyra sig
áfram og koma í mark að niðurlotum komin og oft
hágrátandi. Þá er ég ekki sátt.
Eg tel að börnin eigi að fá að kyimast íþróttum sem
fyrst en alls ekki að etja þeim út í keppni á mótum fyrr
en þau hafa náð til þess nægilegum þroska og aldrei að
ætlast til of mikils af þeim. Bara að þau geri sitt besta og
hafi gaman af leiknum, því krafan um árangur sem þau
svo ná ekki getur orðið til þess að skemma fyrir þeim
ánægjuna af sjálfum leiknum og stuðlað að því að þau
hætti í íþróttum.
A Unglingalandsmóti eru yngstu börnin 11 ára og
finnst mér það vera í lagi svo framarlega sem foreldrar
fylgi þeim á mótið. Það er alltof mikið um það að börnin
eru bara send í rútuna og þjálfararnir látnir sjá um þau á
mótunum. Ég vil hvetja alla foreldra til að fylgjast betur
með íþróttaiðkun barna sinna, fylgja þeim stundum á
æfingar og alltaf á mót, því stuðningur foreldranna er
mjög mikilvægur fyrir börnin í öllu sem þau gera.
Bestu kveðjur,
Kristín Gíslndóttir.
Ég er sextán ára gömul stelpa frá Finnlandi og er meðlimur í finnska
4H klúbbnum. Ég er að leita mér að pennavini frá Islandi og læt hér
fylgja upplýsingar um áhugamál mín.
Mér finnst gaman að lesa, skrifa bréf, fara á skíði og syngja. Ég er í
framhaldsskóla og tala ensku, sænsku, þýsku, smá rússnesku og svo
auðvitað finnsku. Ég vonast til að skrifast á við krakka á mínum aldri.
Ahugamál mín eru tungumál, þjóðerni, list og náttúran.
Heimilistfangið mitt er:
Suvi Tikkinen
Kontiolammentie 205
59100 Parikkala
Finland
Halló,
Ég er 14 ára gömul stelpa frá Finnlandi. Ahugamál mín eru lestur,
skriftir, göngutúrar og knattspyrna. Ég er að leita mér að pennavini á
aldrinum 13 -17 ára. Vinsamlegast skrifið á ensku eða finnsku.
Heimilisfangið mitt er:
Satu Rasanen
Horkantie 23
16600 Jarvela
Finland
SKINFAXI 5