Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1995, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.08.1995, Blaðsíða 15
Nýliðarnir í deildinni mun eiga mjög erfitt uppdráttar vetur. Liðinu hefur gengið illa að næla sér í nýja leikmenn en náðu samt í Atla Sigþórsson frá Snæfellingum. Atli er vanur fallbaráttunni þar á bæ og gæti því reynst Blikunum vel í vetur. Birg: Guðbjörnsson, þjálfari, verður að stappa stálinu vt í þetta unga og reynslulitla lið ef það á ekki að fara beint niður aftur. UMFT Sauðkræklingar koma reynslunni ríkari til leiks í vetur og hafa nælt sér í Pétur Guðmundsson frá Grindavík. Pétur er sterki undir körfunni en hann hirti næst flest fráköst hjá Grindavík í fyrra. Heimavöllur liðsins hefur verið liðinu góður að undanförnu og ef Hinrik Heiðar og Ómar komast í gang ætti liðið að standa s ágætlega. Þjálfari liðsins t Páll Kolbeinsson. B-riðill Lið Grindavíkur mun líklega fara nokkuð auðveldlega í gegnum þennan riðil. Baráttan verður hins vegar um hin sœtin í úrslitakeppninni og er ómögulegt að spá hvaða lið munu komast þar inn. gengur upp í vetur gæti liðið gert stóra hluti. Þjálfari liðsins er Tómas Holton en hann kemur einnig til með að leika stórt hlutverk sem leikmaður.. ÍA UMFG Þrátt fyrir að hafa misst Pétur Guðmundsson og Guðjón Skúlason verður liðið í toppbaráttunni í vetur. Nökkvi, Marel, Guðmundur og Helgi stóðu sig allir mjög vel í fyrra og með einn albesta útlendinginn mun fátt geta stöðvað liðið á leið sinni að öðrum titli. Þjálfari liðsins er Friðrik Ingi Rúnarsson. UMFS Úkraínukossinn Alexander Ermolinskij getur á góðum degi slegið flest lið út af laginu. Með svo sterkan einstakling er aldrei að vita hvað félagar hans Tómas, Henning og Gunnar gera. Lið Skallagríms hefur líklega einn sterkasta heimavöllinn í deildinni og ef allt Brynjar Karl verður sterkari með hverju árinu sem líður en hann skilaði liðinu 18,1 stigi að meðaltali í leik í fyrra. ÍA verður ekki í toppbaráttunni í vetur en þeir lrafa sýnt það og sannað að þeir eiga vel heima í deildinni. Ivar og Haraldur léku vel í fyrra með sama mannskap gæti liðið sett strik í reikninginn. Þjálfari er Hreinn Þorkelsson. SKINFAXI 15

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.