Skinfaxi - 01.08.1995, Blaðsíða 17
OLAFSFJORÐ UR
Fengum 67 verðlaun
á Andrésar Andar-leiliunum
Haraldur Gunnlaugsson er starfsmaður
útgerðarfyrirtœkis á Olafsfirði en í
frítímanum er hann formaður Skíða-
deildar Leifturs. Það stendur mikið til
hjá deildinni en þeir eru nú hálfnaðir
með byggingu nýs skíðaskála. En
hvernig kom það til að hann tók við
formennsku skíðadeildar?
„Ég tók við formennskunni í
október 1994 og má því segja að ég
sé svo til nýbyrjaður."
En af hverju skíðadeildin?
„Ég var mikið á skíðum sjálfur
þegar ég var krakki heima á Siglu-
firði en aðalástæðan fyrir því að ég
fór að starfa fyrir skíðadeildina hér
er líklega sú að krakkarnir mínir
voru komnir alveg á fullt í íþróttinni.
Onnur ástæða er hins vegar sú að
kona sem vinnur með mér, sem hafði
setið í stjórn í einhvern óratíma,
fékk mig fyrst til að hjálpa sér í
bókhaldi og öðru slíku fyrir deildina
og í framhaldi af því er ég formaður
í dag."
Er þetta skemmtilegt starf?
„Þetta er rosalega mikil vinna en
auðvitað er gaman að starfinu,
annars væri maður ekki í þessu. Það
koma líka toppar, eins og síðasta
vetur þegar við unnum meðal
annars 67 verðlaun á Andrésar
Andar-leikunum - það hefur verið
orðað þannig að það sé árangur yfir
fræðilegu hámarki. Svo má ekki
gleyma Kristni Björnssyni en hann
hefur aldrei skíðað betur en í vetur."
Er áhuginn á skíðaíþróttum að
aukast á Ólafsfirði?
„Það var töluverð aukning í fyrra
og árið áður en ég held að í ár hafi
þetta staðið í stað. Ég merki það
aðeins að hann er minni hjá
unglingum en það mátti alveg reikna
með því þegar nýja íþróttahúsið var
tekið í notkun."
Hvað er það helsta sem er í gangi
hjá Skíðadeild Leifturs?
„Það er verið að byggja nýjan
skíðaskála yfir og í kringum tvö
gömul hús. Fyrsta aðstaðan þarna
inn í fjalli var gamall 22 fermetra
bílskúr sem við fengum gefins. Svo
fyrir nokkrum árum var byggt við
hann og þá stækkaði plássið upp í 45
fermetra. Núna gerum við þetta
þannig að við byrjuðum að byggja
við í norður og tengjum þetta svo
allt saman svo þetta verði einn stór
og rúmgóður skáli."
Er ekkert erfitt að fá sjálfboðaliða
til vinnu?
„Það hefur nú verið frekar erfitt
núna. Við vorum með unga menn
sem eyddu öllum sínum stundum
með okkur í sumar en nú eru þeir
farnir í skóla. Við búumst hins vegar
við að fleiri mæti þegar við förum að
vinna innandyra."
Eitthvað annað á döfinni?
„Það er bara allt að fara af stað
fyrir veturinn og þjálfaramálin að
skýrast. Svo bíður maður bara
spenntur eftir fyrsta snjó því það er
ekkert hægt að æfa fyrr en hann
kemur."
Nýi skálinn verður tekinn í notkun fljótlega.
SKINFAXI 17