Skinfaxi - 01.08.1995, Page 9
Hér í ráðuneytinu eru öll mál á
tölvuskrá þannig að það er ekki erfitt
að fylgjast með afgreiðslu þeirra
Hér mætti einnig eins og í
bandaríska menntamálaráðuneytinu
gefa út skrá um það, hve langan
tíma afgreiðsla mála tekur."
Nú hefðu kannski fleiri búist við
því að Björn Bjarnason hefði tekið
við utanríkisráðuneytinu þar sem
hann hefur sinnt þeim málum í
gegnum tíðina. En er menntamála-
ráðuneytið ráðuneyti sem Björn
vildi stjórna?
„Þetta bar nú allt mjög brátt að og
ég hafði nú ekkert óska ráðuneyti.
Ég sætti mig fullkomlega við
menntamálaráðuneytið og hef mjög
gaman af þeim viðfangsefnum sem
hér eru. Allt frá unglingsaldri hef ég
haft áhuga á menningarmálum og
fylgst vel með þeim, það er kannski
helst á sviði íþrótta þar sem ég hef
ekki mikla reynslu eða þekkingu.
Ég reyni samt að láta þær ekki gjalda
þess."
Nú segist Björn hafa litla
þekkingu á íþróttum, hver eru
persónuleg tengsl hans við
Ungmennafélag Islands?
„Þau hafa nú ekki verið mikil en
ég fylgist auðvitað með og hef gert
það í gegnum tíðina. Ég hef hins
vegar lesið mikið um ungmenna-
félagshreyfinguna og ungmenna-
félagsandann og einnig þekkt marga
sem hafa starfað með hreyfingunni."
Og með það að leiðarljósi má ætla
að Björn hafi ekki tekið þátt í
mörgum Landsmótum?
„Ég var alltaf í sveit á sumrin og
skóla á veturna svo að ég var aldrei
beint í aðstöðu til að stunda íþróttir.
Ég þótti til dæmis liðtækur í
hlaupum og stökkum. Hefði ég hins
vegar verið á sumrin hér í Reykjavík
er ég viss um að ég hefði verið meira
viðriðin íþróttirnar. I skólanum var
ég þó aldrei mikið fyrir leikfimi, ég
mætti en leikfimi var ekki fyrir mig."
Nú hefur íþróttalíf unglinga
SKINFAXI 9