Skinfaxi - 01.08.1995, Blaðsíða 12
Meira ber á öfund og afbrýdisemi
Hugleiðingar Flemmings Jessen
Samstarf í íþróttahreyfingunni og
samstarf við aðrar hreyfingar s.s. Sund-
sambands Islands við Ungmennafélag
Islands og Frjálsíþróttasamband Islands
gefur starfsemi allra félaga og sambanda
aukinn kraft og þroska, auk þess sem við
fáum aðra sýn á vinnubrögð, áœtlun og
stefnu.
f vor hefur Fræðslunefnd SSÍ unnið í
samstarfi annars vegar með Lands-
hreyfingu '95, UMFÍ, FRÍ, SSÍ og VÍS
(Vátryggingafélag íslands), þar sem
tilgangurinn er að stuðla að hollri
hreyfingu og fá sem flesta til að
hreyfa sig reglulega. Hins vegar
stóð fræðslunefnd að útgáfu,
bæklings (kortabók) sem sýnir allar
sundlaugar í landinu og upplýsingar
um þær. Okkar framlag þar voru
greinar og hugleiðingar eftir hina
ýmsu þjálfara okkar um sund-
íþróttina. Vonandi er að bæði þessi
verkefni skili þeim árangri sem við
nefndarmenn í fræðslunefnd settum
okkur, en það var að kynna sund-
íþróttina, sundhreyfinguna og eins
og fram kemur hér að framan Vinna
og starfa með öðrum samböndum
við að kynna holla og góða íþrótt.
Samstarf af þeim toga sem áður
hefur verið minnst á tel ég hafa skort
á í allri íþróttahreyfingunni. Meira
ber á öfund og afbrýðisemi sem
kemur þá fram í illu umtali um
menn og málefni heldur en að menn
snúi bökum saman og útbreiði
heilbrigt líferni og holla hreyfingu og
láti einu gilda hvort viðkomandi
stundi hóp- eða einstaklingsíþrótt.
Ef menn eru sammála
um að hreyfing og
ástundun leiði til þess að
færri hefji reykingar eða
byrji seint eða aldrei að
bragða á áfengi þá tel ég
að höfuðmarkmiðinu sé
náð. Allt annað, sigur
hér og sigur þar, er bónus
á það starf sem íþróttahreyfingin
vinnur, hvort heldur hún er unnin í
nafni ISÍ / UMFI eða í nafni félaga
innan áðurnefndra hreyfinga.
Iþróttir eru stundaðar nánast í
hverju bæjar- og sveitarfélagi í
landinu. Auðvitað eru
aðstæður breytilegar og eins
hefur fjöldinn sem byggir
samfélagið mikið að segja um
það hvaða íþróttagreinar
stundaðar eru. Þá er því ekki
að leyna að áhugasamir
einstaklingar hafa mikil áhrif á
hvort og hvað stundað er.
Reynslan sýnir hinsvegar að
aðstaðan; íþróttahús, íþrótta-
vellir, sundlaugar og hvað
annað sem nefna má er ekki
allt. Kraftur, vilji, áræðni og
heilindi er það sem þarf þegar við
viljum leggja góðu málefni lið.
Menn verða að vera það þroskaðir
að þeir geti tekið gagnrýni og unnið
með mönnum með aðrar skoðanir.
Ég get ekki látið þessari umfjöllun
um íþróttir, samstarf og árangur
lokið nema að minnast örlítið á þátt
fjölmiðla. Svo virðist sem áhugi
íþrótta-
fréttamanna
ráði mestu um
hvað fær
umfjöllun og
hvað ekki. Þá
þurfa jákvæðu
fréttirnar að
hafa sama
rými og hinar neikvæðu. Að
sjálfsögðu hljóta alltaf þær
íþróttagreinar sem njóta hyllis að
vera í sviðsljósinu en þó má
íþróttafréttamaður aldrei verða
ofurseldur einhverri íþróttagrein.
íþróttafréttamaður á að vera þeim
kostum búinn að geta unnið
sjálfstætt og hafa víðsýni og
sjálfstæði að leiðarljósi. Auðvitað
geri ég mér grein fyrir að þrýstingur
er mikill frá atvinnulífinu
(auglýsendur), vinnuaðstaða oft
léleg og þeir sem sinna þessu starfi
fáir. Því er það líka okkar hinna
óbreyttu að skrifa og hafa samband
við blöð, útvarp og sjónvarp þegar
hinir ýmsu viðburðir eiga sér stað.
Með góðu samstarfi íþrótta-
fréttamanna og okkar sem úti í
hreyfingunni vinnum ættu allar
íþróttagreinar að fá sína umfjöllun.
Flemming Jessen, ritari SSÍ
Menn verkt tt(l vera
það þroskaðir að þeir
geti tekið gapirjni,
12 SKINFAXI