Skinfaxi - 01.08.1995, Síða 16
Falur Harðarson yfirgaf liðið en
hver getur kvartað þegar leikmaður
eins og Jonathan Bow kemur í
staðinn. Jonathan Bow var með 28,9
stig að meðaltali í leik í fyrra og
mun það án efa koma sér vel fyrir
annars reynslulítið vesturbæjarlið.
Lárus Arnason kom frá IS og er þar
á ferðinni mikill skotbakvörður sem
á eftir að styrkja liðið mikið. Það
mun mikið mæða á þjálfaranum
Axel Nikulássyni og hver veit nema
þessi gamli jaxl nái að púsla saman
sigursælu liði í vetur.
Valur
Lítið annað en fall virðist koma til
greina hjá Hlíðarendaliðinu í vetur.
Þeirra aðalmaður, Jonathan Bow,
yfirgaf liðið og miðað við leik
liðsins í fyrra er ekki búist við miklu
af þeim rauðklæddu í vetur.
Bárður, Bragi og Ragnar léku allir
ágætlega í fyrra en án Jonathan Bow
gætu þeir lent í erfiðleikum. Þjálfari
liðsins er Torfi Magnússon.
Þór
Akureyrarliðið kemur sterkt til leiks
og með betri skilning á
Hvað segir
Tómas Holton?
Hverjir eru möguleikar ykkar
í DHL-deildinni?
„Við eigum svipaða mögu-
leika og í fyrra. Við fórum
nokkuð léttilega í úrslitin og
fengum aðeins smjörþefinn af
því besta. I vetur komum við
reynslunni ríkari og því aldrei
að vita hvað býr í liðinu
Hvaða lið verða í topp-
baráttunni?
„Suðurnesjaliðin verða á
toppnum eins og vanalega en
ég held að Haukarnir komi
til með að ógna þeim. Þeir
eru komnir með stóran
útlending og eru með þrjá
landsliðsmenn fyrir. Þeir œttu
að geta farið alla leið.“
úrvalsdeildinni. Sandy Anderson
og Kristinn Friðriksson eru í farar-
broddi en þeir léku báðir mjög vel í
fyrra. Liðið var heppið með riðil
og gæti vel tryggt sér annað sætið á
eftir Grindavík. Þjálfari liðsins er
Jón Guðmundsson.
Ríkur
í 10 sekúndur
Þeir eru miklir áhugamenn um
knattspyrnu, meðlimir í Veðdeild
Blíðfara á Olafsfirði. Þarna er á
ferðinni karlablúbbur með fimmtán
meðlimi og hittast þeir kvöldið fyrir
hvern leik Leiftursliðsins og veðja á
úrslit. Spennan er mikil og háar
upphæðir í pottinunum, en einu
sigurvegararnir eru hins vegar
knattspyrnudeild Leifturs. Það
mætti kannski frekar kalla Veðdeild
Blíðfara, stuðningsmannaklúbb
Leifturs, þar sem öll starfsemi
deildarinnar felst í því að safna
peningum fyrir 1. deildarliðið.
Blíðfari safnaði litlum 450
þúsundum síðastliðið ár ef
herrakvöldið, sem Blíðfari stendur
fyrir, er ekki talið með. Það eru allar
aðferðir notaðar til að safna
peningum en fyrirkomulag þeirra á
tippkvöldum vekur óneitanlega
mesta athygli. Það kostar meðlimi
200 krónur að tippa og aðeins er
veðjað á úrslit úr leikjum Leifturs.
Peningarnir renna allir í einn pott
sem í rauninni gengur aldrei út. Það
eina sem meðlimir Blíðfara fá fyrir
að tippa á rétt úrslit er að halda á
vinningnum í 10 sekúndur áður en
formaðurinn tekur hann aftur og
leggur í pottinn. I lok tímabilsins er
potturinn síðan allur lagður inn á
reikning knattspyrnudeildar
Leifturs. Það er kannski ekki skrítið
að bæjarfélag með slíka stuðnings-
menn eigi knattspyrnulið í
toppbaráttu 1. deildar.
16 SKINFAXI
Æ