Skinfaxi - 01.08.1995, Síða 20
r
Eg var svo stressaður að
Þorvaldur Jónsson er fæddur og uppalinn á Olafsfirði.
/
A ferlinum hefur hann spilað með liðum eins og KA á
Akureyri og UBK í Kópavogi en nú leikur Þorvaldur
*
heima á Olafsfirði í markinu hjá 1. deildarliði Leifturs
sem liann segir að komið sé til að vera. En hvenœr
byrjaði Þorvaldur að œfa knattspyrnu?
„Ég man nú ekki eftir mér öðruvísi Þjálfaranum hefur ekki fundist
en með fótboltann svo það er nú þú nógu góður útispilari?
??
leikinn þurfti
að sœkja upp
brekkuna.“
örugglega orðið ansi langt síðan ég
byrjaði. Ég var alltaf á skíðum á
veturna en fótboltinn er eftirminni-
legri frá minni æsku. Ég man til
dæmis að við stofnuðum okkar eigin
íþróttafélag
Hálfan og á þeim
tíma voru
þrjú
íþróttafélög
hér á
Ólafsfirði.
Það var
auðvitað Leiftur, þá stofnuðu ég og
vinir mínir Iþróttafélagið Örninn og
aðalandstæðingarnir okkar voru
Fálkarnir. Þá var nú bara æft á
túnunum sem menn höfðu og ég
man nú sérstaklega eftir einum velli-
num en hann var í mjög mikilli
brekku svo hálfan leikinn þurfti að
sækja upp brekkuna. A þessum tíma
vorum við með stórar hugmyndir í
gangi og ætluðum til dæmis að fá
ýtu til að slétta svæðið og gera þar
alvöru völl."
Kepptuð þið þá innbyrðis á móti
Fálkunum?
„Við kepptum innbyrðis og vorum
líka með þær hugmyndir að taka
þátt í Islandsmótinu í knattspyrnu.
Þetta var virkilega skemmtilegur
tími sem maður gleymir aldrei. Við
fórum t.d. alltaf niður á sund-
laugartúnið strax eftir ensku knatt-
spyrnuna á laugardögum og hermd-
um eftir stjörnunum úr sjónvarpinu,
þar var oft mjög gaman."
Varst þú alltaf í markinu?
„Ég hef alla tíð verið í markinu.
Ég spilaði reyndar einn og einn leik í
yngri flokkunum sem útispilari en
það var bara vegna þess að ég var
puttabrotinn eða eitthvað álíka."
„Eða svona góður í markinu."
Hefur þú spilað einhverjar aðrar
íþróttir?
„Hérna var ekkert um neinar aðrar
íþróttir að ræða. Við höfðum mjög
lítinn sal þar sem ekki var hægt að
æfa körfu eða handbolta og í leikfimi
var lítið annað gert en hlaup og
teygjuæfingar. Þegar ég var um 12
ára gamall var ég á gangi um
golfvöllinn og fékk að draga kerru
nokkrar holur sem varð til þess að
ég hljóp beint heim og pantaði sett.
A tímabili æfði ég golfið nokkuð
mikið og var orðinn alveg þokka-
legur, 13 ára var ég kominn í 10 í
forgjöf. Þegar ég varð eldri fór ég
síðan í skóla á Akureyri og fór þar að
æfa handbolta. Ég lék þrjú sumur í
markinu hjá KA í knattspyrnu og á
veturna mætti ég á handboltaæfingar
til að halda mér í formi. Ég var afar
slakur til að byrja með en þetta
þróaðist svo ágætlega og ég spilaði
þarna eina þrjá vetur með mönnum
eins og Magnúsi Gauta og Sigmari
Þresti. Magnús Gauti var alveg
sérstakur en hann hitaði t.d. alltaf
upp með því að fá sé eina pípu og
slá svo nokkrum sinnum á líkamann
sinn, svo fór hann inná og varði eins
og brjálæðingur."
KA-menn hafa ekki leitað til þín
aftur núna þegar Sigmar Þröstur
yfirgaf þá?
„Nei, ég hef nú líklega ekki verið
fyrstur á blaði þar."
Var ekkert erfitt að vera í svo
mörgum íþróttum?
„Ég held að það hafi verið mjög
gott fyrir
framtíð
mína að
hafa æft
??
Fór beint
svona
heim og
pantaði sett.
a
margar
íþrótta-
greinar. Maður þjálfar mismunandi
vöðva í hverri íþrótt og það hefur
komið manni vel og minnkað
meiðslatíðni. Ég tel það ókost að
krakkar séu farnir að velja eina íþrótt
kannski ekki eldri en 10 ára gamlir."
Nú er Leiftur orðið topplið í 1.
deild, hefur þessi árangur liðsins
komið þér á óvart?
„Ég átti nú ekki von á þessu þegar
ég var yngri og það að staður með
ekki fleiri íbúa hafi náð þessum
árangri verður að teljast alveg
frábært. I dag er þetta samt allt
öðruvísi. Núna er miklu meiri
Þorvaldur hefur mest fengið á sig sex mörk í einum og sama leiknum.
20 SKINFAXI