Skinfaxi - 01.08.1995, Page 22
hreyfing leikmanna á milli félaga og
samgöngur orðnar allt aðrar svo það
er voðalega erfitt að bera þennan
árangur saman við árangur liðsins
hér á árum áður."
Nú hafðir þú áður leikið með
toppliðum, hvernig var það?
„Þegar ég spilaði með KA fékk ég
smjörþefinn af því besta og
þroskaðist meira en maður hefði
gert hérna. Ég kom svo hingað
heim árið 1986 og keppti í 3. deild-
TT inni þegar
„rlann var
að kalla á
Grím en ekki
öndunar-
grímu.
a
við unnum
hana. Árið
1987 fórum
við svo upp
í 1. deild en
það var svo
gjörólíkt lið
miðað við
Leiftursliðið
í dag. Það var alveg frábært að
komast upp og spila meðal þeirra
bestu en hugsunin var bara allt
öðruvísi en hún er í dag. Okkur
tókst ekki að halda okkur uppi og
eyddum næstu árum í 2. deild eða
allt þar til við komum upp í fyrra. í
dag erum við með mjög sterkt lið og
það var hægt að gera þá kröfu til
leikmanna að halda liðinu uppi og
við höfum gert gott betur en það."
Finnst þér liðið hafa staðið sig
betur en þú áttir von á?
„Ég er mjög ánægður með
árangurinn hingað til og við eigum
enn raunhæfa möguleika á Evrópu-
sæti (Leiftur tapaði svo fyrir ÍBK 3-2 í
næstu umferð og missti afsætinu). Ef
litið er á mannskapinn þá held ég að
við höfum ekki staðið okkur neitt
betur en við áttum að gera. Við
vorum ekki með neinar yfirlýsingar
fyrir mótið en ég held að flestir
leikmenn liðsins hafi búist við
þessum árangri. Fyrir tímabilið sá
ég ekki nema tvö lið sem væru
sterkari á pappírunum en við og það
voru KR og Akranes. Með þetta
hugarfar fannst mér alveg eðlilegt að
við stefndum að þriðja sætinu en nú
hafa Eyjamenn verið á ótrúlegri
siglingu svo möguleikinn á því sæti
er kannski ekki mikill í dag."
Hver er helsti styrkleiki Leifturs-
liðsins?
„Við erum með mikið af góðum
knattspyrnumönnum og mórallinn
hefur verið mjög góður. Svo er
andrúmsloftið hérna í bænum mjög
sérstakt og við finnum fyrir mjög
miklum stuðningi frá bæjarbúum.
22 SKINFAXI
Ég hef spilað með öðrum liðum eins
og Breiðablik og KA og það er ekki
hægt að bera það saman við
að spila hérna á Ólafsfirði. Hérna
snýst allt um fótbolta og allir
bæjarbúar koma og tala við okkur
eftir leikina og ræða málin. Á
Akureyri og í Kópavogi var bara
mætt á æfingar og leiki en strax að
þeim loknum gleymdist fótboltinn."
Eruð þið komnir til að vera í 1.
deild?
„Það er allt hægt ef viljinn er fyrir
hendi og með þennan mannskap
ættum við að spjara okkur í nokkur
ár í viðbót. Það er að vísu langt
þangað til við fáum einhverja stóra
árganga upp í meistaraflokk hjá
Leiftri en við fáum stráka úr
nágrannabæjum þar sem Leiftur er
eina liðið á Norðurlandi í 1. deild-
ínm.
Hefur íslandsmótið í sumar verið
skemmtilegra en áður?
„Það hefur ekki verið lakara en
hins vegar setur það strik í
reikninginn að Skagamenn stungu
snemma af. Þar af leiðandi fór mesta
spennan úr mótinu en annars tel ég
að flest liðin hafi verið að spila mjög
góðan bolta
„Mótið hefur
ekki verið
lakara en
áður.
íí
og það sést
kannski
best á
árangri
íslensku
liðanna í
Evrópu-
keppninni."
Eitthvað óvænt?
„Nei, það eru alltaf lið sem standa
sig illa og svo önnur sem koma á
óvart. Ég held að umfjöllunin um
þessi lið hafi bara verið meiri í ár þar
sem um tvö stór Reykjavíkurlið var
að ræða."
Er Þorvaldur eitthvað farinn að
spá í að leggja takkaskónum?
„Ég hef auðvitað velt því fyrir mér
en ég tel mig nú enn eiga eftir
nokkur góð ár. Á þessum aldri tek
ég bara eitt ár í einu og velti því
ekkert of mikið fyrir mér."
Að lokum er eitthvað sérstaklega
eftirminnilegt á ferlinum?
„Árið 1987 spiluðum við í
Vestmannaeyjum leik sem endaði 1-
1. Þetta gerðist í fyrri hálfleik en
eins og alltaf þá var ég með
vatnsbrúsa bakvið markið. Ég skelli
mér svo þegar Leiftur er í sókn og
ætla að fá mér vatnsopa en fattaði
fljótlega að búið var að setja vodka í
brúsann í stað vatns, einhverjir
krakkar höfðu þá hellt vodka í
vatnið mitt. Maður hló nú bara af
þessu þá en í da^ hefði þetta eflaust
verið kært til KSÍ.
Árið 1984 lék ég líka mjög