Skinfaxi - 01.08.1995, Síða 31
UNGLINGALANDSMÓT
mæla með að hafa mótið svona
dreift. Það gerir alla framkvæmd
bæði erfiðari og dýrari. Það þarf að
breyta skákkeppninni í
einstaklingskeppni til að útiloka ekki
efnilega einstaklinga frá minni
félögum frá þátttöku. Einnig er
nausynlegt fyrir mótshaldara að hafa
þátttökuna tilbúna í það minnsta
mánuð fyrir mót."
Hvað telur þú að svona mót gefi
krökkunum sem taka þátt?
„Að keppa á landsmóti er mjög
spennandi tilhugsun fyrir krakka á
þessum aldri og allir fá sína
viðurkenningu fyrir þátttöku. Oft
skapast góð kynni á milli krakka
i .. * sem síðan
„Ao sjaljsogöu
er margt mjög
eftirminnilegt
sem verður
aldrei sett á
haldast og
krakkarnir
hafa
samband sín
á milli og
bera saman
prent.
arangur smn
- t.d. frá
síðasta unglingalandsmóti."
Er eitthvað sérstaklega
eftirminnilegt frá mótinu?
„Að sjálfsögðu er margt mjög
eftirminnilegt og mun aldrei verða
sett á prent. Ég vil helst nefna
jákvætt atriði varðandi frekar
leiðinlegt veður á sunnudeginum.
Þannig var að við vorum búin að
leggja mikla vinnu í að skipuleggja
brottför að tjaldbúðunum þannig að
hún gengi sem best fyrir sig. Rútur
áttu að koma og fara úr annarri
áttinni en einkabílarnir úr hinni, en
veðurguðirnir tóku málið í sínar
hendur. Fólk var að fara af svæðinu
allan daginn þannig að engin
umferðarteppa myndaðist og allt
gekk mjög vel fyrir sig. Dálítið köld
en ódýr lausn fyrir mótshaldarann."
Myndir þú halda annað unglinga-
landsmót hérna á Blönduósi?
„Já alveg hiklaust, því fyrr því
betra."
ISLANDSMET
Guðrún Svana Pétursdóttir, HSH, bætti eigið met í hástökki stelpna þegar
hún stökk 1.53 á Unglingalandsmótinu. Guðrún sést hér setja
Islandsmetið og eins og sjá má á myndinni gæti Guðrún stokkið enn
hærra með smá lagfæringu á stíl.
400 manns í frjálsum
Um 400 pátttakendur voru frá
23 samböndum og félögum í
frjálsum íþróttum á
unglingalandsmótinu.
Flestir í knattspyrnu
15 félög sendu um 450
pátttakendur í knattspyrnu og
var pað fjölmennasta greinin á
mótinu.
Fyrirmyndarbikar
Lið Héraðssambands Snæfells-
og Hnappadalssýslu hlaut
fyrirmyndarbikarinn í mótslok.
4000 manns komu
Talið er að alls lmfi um 4000
manns komið og fylgst með
unglingalandsmótinu á
Blönduósi. Uml700 manns
tóku pátt í mótinu frá 24
héraðssamböndum og félögum.
Sigraði þrjár greinar
Þórunn Erlingsdóttir, UMSS,
gat farið ánægð heim að móti
loknu. Þórunn gerði sér lítið
fyrir og sigraði í premur
greinum, spjótkasti, langstökki
og 100 metra hlaupi.
UMSK og UÍA sigursœl
Mjög góð pátttaka var íflestum
greinum frjálsra iprótta á
Vorboðavellinum. UMSK og
UÍA voru sigursælustu
samböndin ífrjálsum íþróttum
en 17 verðlaunapeningar féllu í
skaut hvors sambands.
SKINFAXI 31