Skinfaxi - 01.08.1995, Qupperneq 35
UNGLINGALANDSMÓT
Stærsti sigurinn er
að gera sitt besta
Dagana 12.-14. júlí 1995 var haldið
Unglingalandsmót UMFI í
Húnavatnssýslu, og fór keppnin
fram á nokkrum stöðum.
A Blönduósi var keppt í knatt-
leikjum og golfi - sundgreinar voru á
Hvammstanga - skák, glíma og golf
á Skagaströnd og keppni í frjálsum
íþróttum fór fram á Vorboðavelli
sem er í næsta nágrenni við
Blönduós.
I tilefni þessa landsmóts var vígður
nýr íþróttavöllur - Vorboðavöllur -
sem er í eigu Ungmennafélagsins
Vorboðans í Engihlíðahreppi, en það
er fámennt félag innan vébanda
USAH sem af miklum dugnaði,
krafti og ákveðni hefur gert hina
ágætustu aðstöðu til æfinga og
keppni í knattspyrnu og frjálsum
íþróttum. I forystu þessa félags er
Valdimar Guðmannsson, núverandi
formaður USAH.
Þetta unglingalandsmót var 2. í
röðinni en fyrir 3 árum var það
fyrsta haldið á Dalvík. Framkvæmd
þessa móts tókst bærilega vel en var
ekki hnökralaus. Ávallt þarf að
vanda sem best til undirbúnings og
það þarf líka að setjast niður að
loknu móti og spyrja hvað mátti
betur fara - hvað gleymdist o.s.frv.
og slíkum athugasemdum þarf að
koma áfram til næsta mótsaðila.
íþróttamannvirki eru víða orðin
mjög góð og þar af leiðandi eru fleiri
aðilar en áður prýðilega í stakk búnir
til að taka að sér talsvert viðamikið
mótshald. Með þessu móti verður til
þekking og reynsla vítt og breitt um
landið sem kemur að góðu gagni við
hvers konar meiriháttar atburði sem
þarf að skipuleggja og stjórna.
Það er ekki nokkur efi á að þessi mót
eigi fullan rétt á sér og gefa mikil og
góð tækifæri fyrir æskufólk að koma
saman - þreyta keppni - kynnast -
efla félagsvitundina, og umfram allt
að vera með, því að það skiptir
höfuðmáli. Það verða auðvitað alltaf
einhverjir til að sigra í keppnis-
greinunum - en stærsti sigurinn er
að gera sitt besta - sigra í hjarta sínu
og vekja
gleði og
ánægju
með sjálf-
um sér með
þátttökunni
einni
saman.
Mörgum
finnst
keppni í
íþróttum
ganga of
langt og
vissulega
getur hún
gengið út í
öfgar. Það þarf að gæta vel að
ómótaðri og viðkvæmri barnssál í
hörðum heimi keppnisíþrótta og allir
íþróttakennarar og þjálfarar ættu og
verða að gera sér grein fyrir ábyrgð
sinni í því að skynja á hverjum tíma
hvað er að gerast í huga barns eða
Það er ekki aðalmálið að komast á verðlaunapall.
unglings og bregðast við af
þekkingu og góðri dómgreind.
Hins vegar er afreksfólk nauðsynlegt
- það vekur áhuga - skapar
viðmiðun - hvetur til dáða. Eðli
okkar er slíkt að við viljum og
þurfum fyrirmyndir en afreksfólkið
verður þá líka að vera vandanum
vaxið því
að á það er
horft og
hvort sem
því líkar
betur eða
verr er
,,Hins vegar
er afreksfólk
nauðsynlegt.
ábyrgð þess mikil.
Talsverður fjöldi foreldra fylgdi
börnum sínum á Unglingalands-
mótið og er það mjög til góðs og
auðveldar starf fararstjóra. Svona
mót er kjörið til fjölskyldusamveru
og upplyftingar frá daglegu amstri,
auk þess sem fleiri eru til að hvetja
og vekja góða stemmningu á
mótsstað því að afar fáir utan fylgd-
arliðs félaganna komu til að fylgjast
með mótinu.
Stjórnendur UMFÍ sóttu þetta
landsmót og fylgdust vel með og
sýndu því mikinn áhuga.
Ungmennafélagshreyfingin hefur í
gegnum tíðina mótað og „alið upp"
afreksfólk þessa lands í hinum ýmsu
íþróttagreinum og einnig alla hina
sem sameiginlega hafa og munu
með styrk sínum og félagslund
skapa betra umhverfi í þessu landi
sem okkur öllum þykir svo vænt
um.
Lárus Ægir Guðmundsson
Skagaströnd
35 SKINFAXI