Skinfaxi - 01.08.1995, Qupperneq 37
Yfir 5000 verðlaunamerki afhent
Um 10.000 manns tóku þátt í
Landshreyfingu '95 á um 250
þátttökustöðum um land allt. Yfir
5000 brons-, silfur- og gullverðlaun
voru veitt og á þriðja hundrað
manns tóku þátt oftar en 75 sinnum
og komust þar með í 75-hópinn.
Landshreyfing '95 stóð í 95 daga, frá
28. maí til 30. ágúst 1995. Til að taka
þátt gat þátttakandi valið um að
ganga, skokka eða hlaupa 3 kíló-
metra eða synda 200 metra.
Yfirumsjón með framkvæmd
Landshreyfingar var á skrifstofu
UMFI í Reykjavík, en ungmenna- og
íþróttafélög um land allt höfðu
umsjón með þátttökustöðum á
sínum svæðum ásamt
verðlaunaafhendingu.
75-hópurinn
Þeir þátttakendur sem tóku þátt í
Landshreyfingunni 75 sinnum eða
oftar komust í sérstakan pott. I lok
verkefnisins voru nöfn fimm
þátttakenda dregin úr pottinum og
hlaupinu, en samtals voru þær
11,136 í sumar sem teljast verður
hreint ótrúlegur árangur í svo litlu
samfélagi. Ungmennafélagið
Samhygð var með mesta þátttöku í
hlaupinu miðað við íbúafjölda en
meðaltalið hjá þeim var 22,1 á íbúa.
Hvort félag um sig fékk 100.000
króna peningaverðlaun.
Jóhann Ingi Árnason
verkefnisstjóri
hlutu þau
eftirfarandi
verðlaun:
1. Helgarferð á
Hótel Eddu
Anna Marín
Kristjánsdóttir
(Akureyri)
2. 10,000 kr.
vöruúttekt
Ölvir
Thorstensen
(Reykjavík)
3. 10,000 kr.
vöruúttekt
Ósk Elín
Jóhannesdóttir
(Reykjavík)
4. Speedo-tösku
Erna Erlingsdóttir (Akureyri)
5. Speedo-tösku
Friðþjófur Þorsteinsson (Isafirði)
Eins og í fyrra voru veitt verðlaun
til íþrótta- og ungmennafélaga fyrir
góða þátttöku. Annað árið í röð
voru þeir kröftugir á Þingeyri en
Iþróttafélagið Höfrungur hlaut
verðlaun fyrir mesta þátttökur í