Skinfaxi - 01.02.1996, Page 23
LANDSLIÐIÐ
Logi Ólafsson tók nýlega við þjálfun
karlalandsliðsins í knattspyrnu. Logi
hefur verið sigursæll sem þjálfari og gerði
til dæmis Víkinga að fslandsmeisturum
árið 1991. Logi þjálfaði síðast Skagamenn
til sigurs í deildinni en margir halda því
fram að lið ÍA hefði sigrað deildina hvort
sem það væri með þjálfara eða ekki. Nú
hefur Logi hins vegar stigið skrefið til
fulls og stjórnar í dag fulltrúum
þjóðarinnar á erlendri grund. Árangur
landsliðsins á undanförnum árum hefur
ekki verið upp á marga fiska en því er oft
haldið fram að við íslendingar verðum
bara að sætta okkur við að sitja í neðstu
sætunum þar sem við erum svo fáir. Sem
betur fer eru til einstaklingar sem hugsa
ekki þannig og vonandi fyrir íslenska
knattspyrnu er Logi einn af þeim.
En hvert stefnir með landsliðið og úr
hverju hefur landsliðsþjálfarinn okkar að
moða í framtíðinni? Árangur u-21 árs
landsliðsins að undanförnu hefur verið
afleitur og ef þeir strákar sem þar spila
eiga að taka við landsliðinu er framtíðin
ekki björt. En lítum á þá ungu leikmenn
sem Logi virðist ætla að treysta á:
Lárus Orri er atvinnumaður á Englandi
og þrátt fyrir að spila
ekki í úrvalsdeildinni
fær hann leikreynslu
þar sem hann fengi ekki
á íslandi. Lárus er
fljótur og kemur vel til
greina sem framtíðar
bakvörður landsliðsins.
Rútur Snorrason er
ungur og efnilegur en
hefur átt í vandræðum
með meiðsli. Hann er
lítill (tekur fáa
skallabolta) og snerpa
er ekki hans sterkasta
hlið. Rútur hefur hins
vegar mikinn skilning á leiknum og skilar
boltanum vel frá sér á miðjunni.
Helgi Sigurðsson lék með Víkingum
þegar Logi þjálfaði þá. Helgi er einn af
þessum framherjum sem kunna lítið
annað en að skora og það er nú einmitt
það sem hefur komið honum svona langt.
Helgi á eftir að fá tækifæri sem framherji
í landsliðinu.
Guðmundur Benediktsson verður að
keppa um sæti við Helga. Gummi er ekki
jafn „markheppinn" og Helgi en mun
betri með boltann á tánum. Gummi er
einn af okkar bestu framherjum í dag.
Þorsteinn Guðjónsson kom óvænt inn í
landsliðið í fyrstu leikjum Loga.
Þorsteinn er góður varnarmaður en fyllir
skarð Guðna Bergs illa.
Aðrir leikmenn sem koma til með að
klæðast landsliðsbúningnum á næstu
árum eru t.d. Helgi Kolviðsson, Tryggvi
Guðmundsson, Eiður Smári og Hermann
Hreiðarsson.
ianasAiosin
i k
nattspyrn
Landslið Loga í dag
fybkib
Á<$ú(t » Óli %0Htein tt $iqub(teim
Óti jb.
ítfíótfu ► ífyábki
Iranpi' i-21 árs HsliÉ í sííliislii Enpntpi
ísland - Svíþjóð 0-1
Tyrkland - Island 3-0
Sviss - ísland 2-1
Svíþjóð - ísland 1-0
Island - Ungverjaland 1-1
ísland - Sviss 2-4
ísland - Tyrkland 2-3
Ungverjaland - ísland 3-1
Neðsta sæti með eitt stig. íslenska landsliðið
skoraði sjö mörk en fékk á sig 18. Arangurinn
hreint út sagt mjög lélegur.
Skinfaxi 23