Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1996, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.02.1996, Blaðsíða 36
IMHVERFIÐ ----T---- 1,5 milljarðar áldósa á viku - bara í Bandaríkjunum Ertu þreyttur á að horfa á allar tómu kók-dósirnar í eldhúsinu? Orðinn leiður á að fylgjast með dagblaðahrúgunni stækka? Með smá skipulagningu getur þú losnað við draslið og komið af stað endurvinnslu á þínu heimili. Hvar er góður staður? •Það er enginn staður fullkominn fyrir tómar áldósir og gömul dagblöð. Skoðaðu heimilið þitt vel og reyndu að finna stað þar sem umgengnin er ekki mikil en þú getur samt auðveldlega komist að. Ef þú átt erfitt með að ganga frá því sem á að endurvinna eru meiri líkur á að þú hættir. •Ef þú hefur takmarkað pláss verður þú að fara oftar með drasl í endurvinnsluna. Ráðleggingar •Einn vinsælasti staðurinn til að safna draslinu saman er undir vaskinum. Flestir hafa ruslafötuna undir vaskinum og með því að hafa það sem á að endurvinna sem næst ruslinu breytir þú lítið út af vana. • Ekkert pláss undir vaskinum? Aðrir góðir staðir eru svalir og kústaskápar. •Dagblöðum er hægt að safna nánast hvar sem er. Ef þú hefur aðgang að þurrum bílskúr er t.d. hægt að hafa pappakassa í einu horninu þar. Með þessu fyrirkomulagi gætir þú hent dagblöðunum í kassann áður en þú ferð í vinnuna. •Endurvinnsla á fleiru en dagblöðum og dósum? Mundu að þú þarft ekki að geyma allt á sama stað. Einnig er sniðugt að láta hvern fjölskyldumeðlim sjá um mismunandi úrgang til endurvinnslu - þá er ekki hægt að kenna öðrum um. Hreinlæti •Sumar fjölskyldur hafa hætt endur- vinnslu þar sem þeim finnst óhreinlæti aukast. Það þarf ekki að gerast og öruggasta leiðin til að koma í veg fyrir óhreinindin er að fara nógu oft með uppsafnað drasl í endurvinnsluna. Safnaðu aðeins litlu magni í einu undir vaskinum og notaðu frekar bílskúrinn fyrir stærri kassa eða poka. Skottið á bílnum •Það skiptir ekki máli hvort þú ákveður að safna draslinu í litla eða stóra poka eða jafnvel kassa. Hafðu bara í huga að dagblöðin geta orðið mjög þung ef um er að ræða t.d. stóra svarta plastpoka. •Hversu stórt er skottið á bílnum þínum? Ef þú safnar í stóra kassa eða poka hafðu þá í huga að þú þarft að koma þeim fyrir í bílnum þínum. Margt smátt gerir eitt stórt. íþróttamaðui* ársius - Jón Arnai* Magnússon, Umf. Tindastóli Það kom kannski fæstum á óvart að tugþrautarkappinn Jón Arnar Magnússon hafi verið valinn íþróttamaður sl. árs. Jón Arnar hefur sýnt miklar framfarir að undanförnu og margir eru á því að hann eigi góða möguleika á meðal þeirra bestu á næstu Olympíuleikum. Jón Arnar lætur allar stórar yfirlýsingar eiga sig en hann hafði þetta að segja þegar við hjá Skinfaxa spurðum hann um framtíðardrauma hans sl. sumar: „Eg er ekki farinn að hugsa svo langt. Ég hafði sett mér það takmark að ná 8000 stigunum og það gekk vel. Næst eru það Ólympíuleikarnir. Ég hugsa ekkert lengra, því þá fer ég bara að stressa mig upp. Þarna sérðu hvað ég er kærulaus! En ég tek bara á þessu þegar þar að kemur. Það borgar sig ekki að lofa neinu eða segja neitt." 36 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.