Skinfaxi - 01.02.1996, Page 31
S U.T & III ViM
Fjórðungur íbúa Þingeyrar í sundi
- samtímis
Það var mikið um að vera á Þingeyri
sunnudaginn 4. febrúar.4
Nýlega var opnuð ný sundlaug í
þorpinu og til að vekja athygli á henni
ákváðu stjórnarmenn Iþróttafélagsins
Höfrungs að reyna að setja heimsmet í
að „troða“ fólki ofan í sundlaugina.
Fréttabréfi var dreift til allra íbúa
þorpsins (um 420 talsins) þar sem
skorað var á þá að mœta og ekki
vantaði áhugann þar sem rúmlega
fjórðungur allra þorpsbúa mœttu í
sundlaugina eða 127 manns. Hvort
um heimsmet er að rœða er ekki vitað
en það eru órugglega fá dœmi um að
svo stór hópur bœjarfélags hafi verið
saman kominn ofan í sundlaug.
IUark eftir 3,69 sekúndur
-en City oy Inited skildu jöfn
Framherjinn Damian Mori, leikmaður
Adelaide City í Astralíu, komst nýlega í
heimsmetabók Guinnes þegar hann gerði
sér lítið fxjrir og skoraði mark eftir aðeins
3,69 sekúndur. Dómarinn var mjbúinn að
flauta leikinn á þegar Mori sá að
markvörður Sydney United var ekki alveg
með á nótunum og notaði tækifærið og
skautfrá miðju. Boltinn fór yfir
markvörðinn og beint í netið. Þrátt fyrir
þessa frábæru byrjun tókst Adelaide City
ekki að vinna leikinn en lokatölur urðu
jafnar 2-2.
Skinfaxi 31