Skinfaxi - 01.02.1998, Side 10
Stórmót IR
Eitt alglæsilegasta frjáls-
íþróttamót sem haldið hefur
verið hér á landi fór fram í
Laugardalshöll í upphafi
ársins. Þar voru margir af
bestu frjálsfþróttamönnum
heims sem mættu til leiks og
kepptu við okkar besta fólk
Það vantaði ekki stjörnurnar á Stórmót ÍR sem haldið var
í Laugardalshöll í upphafi árs. Allt okkar besta íþróttafólk
var mætt til keppni og nægir þar að nefna; Jón Arnar,
Guðrúnu, Völu og Einar Karl sem öll glímdu við erfiða
keppinauta utan úr heimi. Jón Arnar mætti léttari til leiks en
vanalega og sást það vel í langstökkinu þar sem hann fór lét
yfir sjö metrana og minnstu munaöi að það dygði honum til
sigurs í þríþautinni. Það var hins vegar fyrrum heims og
Ólympíumeistari, Tomas Dvorak, sem hafði betur á
endasprettinum og nældi sér í gullmedalíuna. Jón Arnar var
annar en Bandaríkjamaðurinn Chris Huffins varð að láta sér
nægja þriðja sætið.
Guðrún sterk
Okkar sterkasta hlaupakona, Guðrún Arnardóttir, mætti í
feiknagóðu formi og nældi sér í gull og silfurmedalíu.
Guðrún sigraði glæsilega í 50 metra grindahlaupi en varð
að játa sig sigraða eftir spennandi keppni í 50 metra
spretthlaupi. Stangarstökksdrottningin okkar, Vala Flosa-
dóttir eða Flasa Völudóttir eins og einn íþróttafréttamaðurinn
okkar kallaði hana, sýndi að hún er að komast í fyrra form
þegar hún sveif hátt yfir 4,20 en það var sama hæð og hún
fór yfir á Afmælismóti ÍR í fyrra. Vala þurfti að sjá eftir gullinu
til Danielu Bartovu sem stökk sömu hæð en notaði færri
tilraunir.
Einar Karl nálgast
Það var mikil spenna í hástökkinu þegar Einar Karl
Hjartarson reyndi við nýtt fslandsmet í greininni.
íslandsmetið á Gunnlaugur Grettisson sem einmitt var
dómari á stórmótinu. Einar Karl fór hátt yfir 2,10 en þegar
hann reyndi við 2,16, fslandsmetið, tókst atrennan ekki nógu
vel og hann felldi þrisvar. Gunnlaugur Grettisson sagði eftir
mótið að hann byggist ekki við að halda metinu út árið
(Einar sló metið á næsta móti). ,,Einar Karl hefur alla burði
til að slá metið og mér finnst líklegt að hann fari yfir 2,16 á
næsta móti - hann þarf bara aðeins að laga atrennuna og
þá svífur hann langt yfir,“ segir Gunnlaugur.
Texti: Jóhann Ingi
Myndir: Jóhann Ingi
Bandaríkjamaöurinn Chris Huffins var vinsæll hjá yngri kynslóðinni og hann
gaf sér góöan tima til aö gefa þeim eiginhandaráritanir.
Jón Arnar Magnússon varö aö láta sér nægja 2. sætiö eftir mikla rimmu viö
Thomas Dvorak. Jón Arnar kastaði iengst allra í kúluvarpinu eöa 15,50
Chris Huffins virðir fyrir sér tugþrautarkappa framtíöarinnar. Sonur Jóns
Arnars Magnússonar er hér ásamt frænku sinni aö fylgjast meö keppninni.