Skinfaxi - 01.08.2002, Síða 5
SVEPPIR
Ofskynjunarsveppir
valda skyn-
truflunum og
tilfinningaröskun
sem geta leitt til
brenglunar á
persónuleika og
varanlegum
heilaskaða. Oft
innihalda þessir
sveppir önnur
eiturefni, eins og
blý, sem hefur áhrif
á minni og aðra
heilastarfsemi.
Saintaka /
Aætlunin ísland án eiturlyfja er samstarfsverkefni ríkisstjórnarinnar,
Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og evrópsku samtakanna
European Cities Against Drugs (ECAD). Markmið áætlunarinnar er að leita leiða til
að sameina krafta þjóðarinnar í baráttunni gegn ólöglegum fíkniefnum, efla forvarnir,
hefta innflutning og skipuleggja verkefni og aðgerðir sem hafa þetta að leiðarljósi.
ísland hefur alla burði til að ná miklum árangri í baráttunni gegn eiturlyfjum. Við
erum fámenn og vel menntuð þjóð, þar sem almenn velmegun ríkir, þekking á
neytendum eiturlyfja er til staðar og umtalsverð kunnátta í forvarnar- og
meðferðarmálum. Andstaðan við eiturlyf er almenn meðal landsmanna og
aðkomuleiðir eiturlyfja til landsins eru takmarkaðar sökum legu landsins. Baráttan
gegn útbreiðslu eiturlyfja er barátta við skipulagða glæpastarfsemi þar sem peningar
ráða ferðinni og börn og unglingar eru fórnarlömb. Flestir sem ánetjast eiturlyfjum
hefja snemma áfengisneyslu og leiðast út í eiturlyfjaneyslu fyrir tvítugsaldur.
Lykilatriðið er að allir láti sig málið varða.
ísland án eiturlyfja
Ráðhús Reykjavíkur • 101 Reykjavík • Símar 563 2000, 563 2092 og 585 1473 • Fax
562 2415 • netfang iae@rvk.is
SNIFFEFNI
Sljóleiki, yfirlið og
varanlegur heilaskaSnifefni
eru lyktarsterk efni, s.s. lím,
gas og lökk sem hafa bein
áhrif á taugakerfi og hjarta.
Einstaklingur undir áhrifum
verður mjög sljór og
ruglaður í ríminu.
Hjartsláttur eykst og oft
fellur neytandinn í yfirlið
fyrst eftir inntöku. Mikil
hætta er á lostaástandi
hjartastoppi. Mörg dæmi eru
um að sniffefni hafi valdið
varanlegum heilaskaða.
...þeir sem neyta
ofskynjunarlyfja
fá oft þær
ranghugmyndir að
skyntruflanir
þeirra séu
yfirskilvitsleg
upplifun á
veruleikanum...
Hjálparsími Rauða krossins
T7T7
aj|a Rauði kross fslands