Skinfaxi - 01.08.2002, Blaðsíða 10
Því miður verða stúlkurnar síkátu, Þóra
Karítas Árnadóttir og Maríko M. Ragnars-
dóttir, ekki á skjá landsmanna í vetur, en
þær stjórnuðu þættinum Hjartslætti í
Strætó á SkjáEinum í sumar at stakri
snilld og naut þáttur þeirra mikilla
vinsælda. Þrátt fyrir afbragðsþátt og góða
framkomu í sjónvarpi eru stúlkurnar á allt
annarri línu dags daglega, en Þóra lauk
guðfræðinámi við Háskóla íslands síðasta
vor og Maríko er á öðru ári í viðskipta-
fræði við Háskólann í Reykjavík.
Valdimar Kristófersson hitti hinar bros-
mildu stúlkur og lék forvitni á að vita
hvað þær ætluðu að gera í vetur og hvort
eitthvert framhald yrði á veru þeirra í
sjónvarpi.
Erfiðleikarnir fólust í því að
stilla saman tíðahringinn!
Fráhvarfseinkenni!
Síðasti þátturinn ykkar var í lok ágúst -
hvað hafið þið verið að bralla síðan?
,,Ég tók mér frí eftir þáttinn en er að bralla
ýmislegt þessa dagana. Ég er að klára að
þýða bók sem er ætluð unglingsstelpum.
Bókin kemur inn á margt í menningu okkar
og umhverfi og m.a. er verið að skoða það
sem er í gangi í auglýsingum og fjölmiðlum
og athuga hvað gerir okkur gott og hvað
ekki,“ segir Þóra. Það er til dæmis verið að
hvetja stelpur til að skoða hverjar fyrir-
myndir þeirra eru, kenna þeim að setja
mörk og taka sjálfstæða afstöðu í ýmsum
málum, segir hún og bætir því við að stefnt
sé að því að gefa bókina út fyrir jólin. Mar-
íko einbeitir sér hins vegar að viðskipta-
fræðinámi við Háskólann í Reykjavík.
Þær verða ekki með þátt sinn Hjartslátt í
Strætó í vetur, en skyldu þær hafa verið
búnar að fá nóg hvor af annarri? ,,Nei,
alls ekki. Við náum ótrúlega vel saman og
hittumst enn oft enda auðvelt að fá
fráhvarfseinkenni þegar maður er búinn að
hittast á hverjum degi f fjóra rnánuði," segir
Maríko og heldur áfram: „Það stóð aldrei til
að vera með þáttinn í vetur, en hver veit
hvað verður næsta sumar. Það er gott að
fá smá frí frá þessu og hlaða batteríin upp
á nýtt og hver veit hvað við tvær eigum eftir
að bralla saman í framtíðinni."
En rifust þið aldrei? „Samstarfið var ein-
staklega gott og við rifumst ekki í eitt ein-
asta skipti. Við vorum einmitt að hlæja að
því um daginn að mestu erfiðleikarnir fólust
í því að stilla saman tíðahringinn hjá okkur,“
segir Þóra og Maríko hlær og bætir við:
„Við trúum öllu yfirnáttúrulegu í dag. Ef eitt-
hvað skrýtið gerist þá segjum við bara:
Þetta er nú ekkert fráleitara en að hægt sé
að stilla saman tíðahringinn.“
Þóra, þú ert með B.A. próf í guðfræði.
Hvernig stóð á því að þú fórst í þetta
nám? „Forvitni. Ég var óákveðin eins og ég
er enn í dag, en mig langaði bara að prófa
þetta. Þetta var skemmtileg reynsla og ég
kom náminu vel heim og saman við vinn-
una, en á sama tíma var ég með Pensúm,
sem var háskólaþáttur sýndur á SkjáEinum.”
Ertu mikið tengd Guði? „Ég vildi oft óska
þess að ég væri í meiri tengslum við Guð.
Að trúa á Guð fyrir mér er að trúa á fegurð-
ina í lífinu og ef þér tekst það hlýturðu að
vera í góðum málum. Ég er ekki bókstafs-
trúarmanneskja og það er langt frá því að
mér finnist einhver trúarbrögð fullkomin
eða betri en önnur. Trúin getur kannski í
grunninn verið góð en trúarbrögð eru í
raun túlkun ótal manna og kvenna í gegn-
um tíðina á trúnni. Ég get ekki samþykkt
að það sé heillavænlegt að trúa trúar-
brögðunum, þ.e. að gleypa hrátt við þeim,
sumt hefur verið mistúlkað eða rangtúlkað
annað oftúlkað og svo er margt sem úr-
eldist eins og gefur að skilja. Þess vegna
reyni ég að beita heilbrigðri skynsemi á
trúarbrögðin til þess að geta trúað.“
En hvað er verið að fást við í guðfræð-
inni? „Guðfræðin er mjög áhugavert nám
og veitir innsýn inn í ótal margt. Þú færð
nýja sýn á samfélagið sem þú býrð í og á
allan heiminn. Ég hef þó mestan áhuga á
siðfræðinni og sálgæslunni og núna er ég
að reyna að ákveða hvert ég á að stefna
næst í námi, lögfræði, sálfræði eða leiklist.
Helst vildi ég læra þetta allt. Sjónvarps-
vinnan hefur líka vakið áhuga minn á
kvikmyndagerð."