Skinfaxi - 01.08.2002, Blaðsíða 13
Fegurðardrottning íslands 2002 heitir
Manúela Ósk Harðardóttir og er nem-
andi í MR. Hún er á náttúrufræðibraut
og lýkur námi næsta vor en stúlkan er
19 ára. Þegar Valdimar Kristófersson
hitti þessa blómarós í höfuðstöðvum
UMFÍ þá skein gleðin og sjálfstraustið
úr andliti hennar, en líf þessarar ungu
og glæsilegu fegurðardrottningar hefur
ekki alltaf verið dans á rósum. Á sínum
yngri árum, og ailt fram að mennta-
skóla, lenti hún í einelti og átti lengi vel
mjög erfitt. Valdimar Kristófersson
settist niður með Manúelu og ræddi við
hana um fegurðarsamkeppnina, Mike
Tyson, einelti, reykingar og áfengi, en
Manúela reykir ekki og hefur aldrei
smakkað áfengi, enda
fyrirmyndarstúlka.
Þaö liggur beinast við aö spyrja hvort það hafi
verið draumur Manúelu þegar hún var yngri að
verða fegurðardrottning?
,,Nei, það var kannski ekki beint draumur hjá mér, en
ég man alveg eftir því að ég gekk í gegnum visst
tímabil þarsem ég var prinsessan á heimilinu. Það var
í raun aldrei stefnan hjá mér að taka þátt í fegurðar-
samkeppni og ég var mjög lengi að ákveða mig hvort
ég ætti að taka þátt í Ungfrú Reykjavík í fyrra. Það var
frekar fyrirsætuheimurinn sem heillaði mig þegar ég
var yngri. Ég reyndi fyrir mér erlendis en var aðeins 13
ára þegar ég fór út til New York að starfa sem fyrirsæta
og var alltof ung. Ég hafði ekki nægilegan þroska til að
takast á við marga hluti, t.d. höfnun og annað slíkt og
var því fljót að brotna niður. Þetta var samt skemmti-
legur og þroskandi tími, en þetta var rosalega mikil
vinna. Það er margt gott í fyrirsætuheiminum en líka
margt slæmt."
Manúela öak Harðardóttir
Er alltaf meðvituö um
hvað ég er að gera
Manúela Ósk Harðardóttir fegurðardrottning íslands hvorki reykir né drekkur