Skinfaxi - 01.08.2002, Page 16
■Eorvarnabloð SkinfoxQ
Höfðu forvarnir einhver áhrif á þig? ,,Já,
vissulega. Þessar forvarnir komu alla vega
þeim skilaboðum til mín að þetta væri
hættulegt."
Var lögð í einelti
Hvað með áfengið. Var enginn hópþrýst-
ingur þar? ,,Nei, og ef ég segi alveg eins
og er þá var ég dálítið mikið ein á þessum
árum. Ég átti við eineltisvandamál að stríða
og var því mikið ein með sjálfri mér og því
fyrir utan þennan hóp sem var byrjaður að
fikta með áfengi og sígarettur. Hann hafði
því ekki áhrif á mig enda hafði ég ekki
áhuga á að falla inn í hópinn hjá þeim. Ég
hélt bara minni stefnu, var í ballett og dansi
og gerði þar sem ég vildi gera.“
Lentir þú í alvarlegu einelti þegar þú
varst yngri? ,,Já, og það var alveg hræði-
legt. Ég lenti í því strax í barnaskóla. Ég
held að þetta hafi allt byrjað með afbrýðis-
semi, en sem barn lék ég í mörgum leik-
ritum og barnasýningum í Þjóðleikhúsinu.
Krakkarnir í skólanum vissu af þessu og
strax þegar ég var í átta ára bekk þá var ég
útskúfuð og lögð í einelti."
Var algjört helvíti
Og heldur þú að það hafi verið vegna
afbrýðissemi? ,,Já, það er alla vega það
fyrsta sem kemur upp í hugann. Umræðan
um einelti er orðin miklu opnari í dag en
áður og helstu ástæðu eineltis telja menn
vera afbrýðissemi hjá krökkum. Mér fannst
ég aldrei gera neitt slíkt á hlut krakkanna
sem verðskuldaði slíka framkomu. Ég hætti
meira að segja í Melaskóla út af einelti og
fór í Miðbæjarskóla, sem er einkaskóli. En
eineltið hélt síðan áfram og í Hagaskóla var
þetta algjört helvíti. Ég var bara ekki tekin í
sátt.“
Var eineltið þá í formi stríðni eða á
einhverju öðru formi? ,,Já, fyrst til að
byrja með var þetta bara stríðni. Ég fékk
ekki að vera með í neinum leikjum og fékk
glósur um að ég væri Ijót og leiðinleg.
Þegar ég varð eldri og fór í Hagaskóla þá
breyttist þetta í ofbeldi. Þá voru stelpurnar
orðnar svo miklar gellur og ætluðu að lemja
mig, fötunum mínum var stolið meðan ég
var í skólasundi o.fl.“
Voru þetta bæði strákar og stelpur?
,,Nei, þetta voru aðallega stelpur."
Ertu þá mikil strákastelpa? ,,Já, ég á
bara stráka sem vini. Strákar eru bara
miklu skemmtilegri og miklu traustari vinir.
Það er kannski eðlilegt að ég
hugsi svona eftir það sem ég
lenti í, en ég kynntist fullt af
góðum og skemmtilegum stelp-
um í fegurðarsamkeppninni og
eru margar þeirra ágætisvin-
konur mínar í dag og mér þykir
vænt um þær. Hins vegar eru
stelpurnar sem hafa verið
leiðinlegar við mig í gegnum
tíðina að þroskast, sem betur
fer fyrir þær enda flestar orðnar
19 ára.“
Þátttakan í feguröarsam-
keppninni hafði góð áhrif
á mig
Mér fannst ég
aldrei gera
neitt slíkt á hlut
krakkanna sem
verðskuldaði
slíka
framkomu. Ég
hætti meira að
segja í
Melaskóla út af
einelti og fór í
Miðbæjarskóla,
sem er einka-
niður þegar eineltið átti sér stað, en í
keppninni náði ég að byggja mig vel
upp á nýjan leik og hún hjálpaði mér
rnikið."
Hefur þetta áhrif á þig enn í dag?
,,Já, það gerir það, þegar ég horfi til
baka. Mér finnst voðalega sárt að
hafa lent f þessu enda voru þetta
erfiðustu ár lífs míns. Ég grét stöðugt,
mér leið hræðilega illa og þetta var
rosalega erfitt og leiðinlegt tímabil.
Ég reyni þó að horfa á björtu hlið-
arnar og vera þakklát því ég væri ekki
sú manneskja sem ég er núna ef ég
hefði ekki lent í þessu. Ég er miklu
sterkari karakter vegna þessa og mér
finnst ég líka koma betur fram við
Hvaða áhrif hafði eineltið á
þig? ,,Mjög skemmandi, sjálfs-
traustið var langt niðri og ég var
mjög lítil í mér lengi vel á eftir.
Þátttaka mín í fegurðarsam-
keppninni hafði mjög góð áhrif
á mig. Ég hef alltaf verið of-
boðslega feimin og það var
stöðugt verið að brjóta mig
skóli. En
eineltið hélt
síðan áfram og
í Hagaskóla var
þetta algjört
helvíti. Ég var
bara ekki tekin
annað fólk vegna þess að það var
komið illa fram við mig.“
Og eitt að lokum. Kemur fegurðin
að utan eða innan? ,,Það er engin
spurning að fegurðin kemur að innan.
Það skiptir rosalega miklu máli að
einstaklingurinn hafi útgeislun sem
kemur innanfrá."