Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2002, Síða 19

Skinfaxi - 01.08.2002, Síða 19
Neyslan oft tengd við dauðsföll Karl Steinar Valsson er afbrotafræðingur og yfirmaður forvarna- og fræðsludeildar lögreglunnar. í forvarnadeild er, eins og nafnið gefur til kynna, unnið að öllu for- varnastarfi embættisins. Þar eru heimsóknir í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla undirbúnar og eins fræðsluerindi fyrir ýmsa aldurshópa um margvísleg málefni sem snerta lögregluna. Þá starfa í deildinni sjö hverfislögreglumenn sem sinna sérstaklega málefnum barna og ungmenna í tilteknum hverfum borgarinnar. Öll hverfi í umdæminu hafa slíkan starfsmann sem vinnur meðal annars með skóla- og fálagsmálayfirvöldum auk þess að sinna rannsóknum mála sem varða börn og ungmenni. Valdimar Kristófersson ræddi við Karl Steinar um fíkniefni, forvarnir og aðstæður sem lögreglumenn geta lent í vegna misnotkunar á áfengi og fíkniefnum. horfi gagnvart neyslunni. Ef satt er erum viö þá stöðugt að sökkva dýpra? „Já, því miður virðist sem sölumönnum þessara efna hafi tekist að blekkja ung- menni og telja þeim trú um að neysla þess- ara efna sé skaðlaus og hafi lítil önnur áhrif á einstaklinginn en sæluáhrif. Þetta er alrangt og við höfum mörg dæmi um and- lega vanlíðan tengda neyslu efna og frá- hvarfseinkenni sem koma eftir að neyslu er hætt. Innan læknavísinda er alltaf verið að rannsaka þetta betur og betur og það er þess vegna sem efnin eru bönnuð. Því er undarlegt til þess að vita að menn séu almennt að velta því fyrir sér hvort þessi efni séu skaðleg eða ekki.“ Hvernig stendur á þessari auknu neyslu ungiinga; eru ríkisstjórnin og landsmenn í heild sinni að gefa eftir í baráttu sinni gegn fíkniefnum? „Nei, ég held einmitt að aldrei hafi verið unnið jafn mikið og skipulega í þessum mál- um. Mikil samvinna hefur verið við þá sem láta sig þessi mál varða, umtalsverðum fjár- munum hefur verið varið til málaflokksins og menn reynt að gera eitthvað sem telja megi líklegt til árangurs." Hvað er til ráða? „Áframhaldandi skipulagt starf þar sem skýrðar eru fyrir einstaklingum hugsanlegar Aldurinn lækkað á undanförnum árum Hvernig er staðan á íslenskum fíkniefnamarkaði í dag? „Á undanförnum árum hefur að- gengi að ýmsum tegundum fikni- efna aukist nokkuð jafnt og þétt. Ef við horfum um 10 ár til baka þá voru það einkum kannabisefni sem voru ráðandi á markaðinum og oft bar á því að skortur væri á efnum. í dag er staðan sú að aukn- ing hefur einkum verið í amfeta- míni og E-töflum og svo virðist sem sjaldan sé skortur á efnunum. Þó gerist það helst eftir að lög- reglan hefur lagt hald á umtalsvert magn fíkniefna." Hver eru algengustu efnin í dag? „Algengustu efnin í dag eru því kannabisefni, amfetamín og E- töflur." Því miður virðist svo vera að aldur þeirra sem nota fíkniefni fari lækkandi. Er auðvelt fyrir unglinga að nálgast fíkniefni? „Því miður hefur aldur þeirra sem eru að neyta efna lækkað á undan- förnum árum, þó ekkert sérstak- lega alveg nýlega. Þetta er þró- un sem við sjáum gerast og er í samræmi við það sem þekkist á Norðurlöndunum. Auðvelt virðist að útvega sér efnin og má kann- ski helst bera það saman við það hvernig ungmenni nálguðust áfengi fyrir rúmum áratug síðan. Tók smá tíma en var vel fram- kvæmanlegt." Hvar eiga þessi viðskipti sér helst stað? „Það er allur gangur á því hvern- ig þessi viðskipti fara fram. Yfir- leitt er slíkt ekki mjög áberandi en talað er um að mikil viðskipti eigi sér stað í tengslum skemmtanalífið auk þess sem menn hafa sínar aðferðir til að mæla sér mót.“ Jákvæð viðhorf gagnvart neyslunni Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu SÁÁ virðist sem áhugi unglinga á fíkniefnum hafi aldrei verið meiri en þessar mundir og að þeirra birtist í jákvæðu við- Ljósmynd: Árni Sæberg

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.