Skinfaxi - 01.08.2002, Side 28
Porvarnnbloð Skinfo*e
að ganga í gegnum margt á tímabilinu og það
koma tímar sem maður er alveg gjörsamlega
búinn líkamlega, en þetta er allt þess virði þegar
það gengur jafn vel og það gekk í fyrra.“
Þú segir að það reyni mikið á líkamann.
Menn þurfa væntanlega að fara vel með sig
og hollt mataræði o.fl. - er væntanlega stór
þáttur í þessu? ,,Já, það er rétt. Það kemur
næringarfræðingur til okkar einu sinni í viku og
eru þá allir leikmennirnir fitumældir og athugað
með formið. Auk þess þurfum við reglulega að
skrifa niður, heila viku í senn, hvað við borðum
og svo fer næringarfræðingurinn yfir þetta og
bendir okkur á hvað við megum bæta til að vera
sem best undirbúnir. Þannig að það er fylgst
mjög vel með okkur.“
Hvað með franskar, hamborgara, gos o.fl.?
„Þetta er allt stranglega bannað og allt látið í
friði. Maður verður að hafa allt með sér sem
mögulegt er í þessu svo maður haldi út og því
skiptir rétt mataræði miklu máli. Hjá WBA verða
allir í liðinu að vera undir 10% í fitu annars eru
menn teknir fyrir og látnir hafa fyrir hlutunum. Ég
viðurkenni þó að ég fer ekki í gegnum heilt tíma-
bil án þess að fá mér franskar og borgara, en
það er aldrei oftar en kannski einu sinni á tvegg-
ja vikna fresti. Maður verður að leyfa sér smá
frjálsræði annað slagið en það er bara undan-
tekning. Gos og sælgæti er einnig á bannlista-
Allt innan löglegra marka
Er eitthvað um það í enska boltanum að menn séu að taka inn
ólögleg lyf til að halda sér í góðu ástandi og til að ná sér fyrr
eftir meiðsli? ,,Nei, alls ekki. Þess vegna erum við með næringar-
fræðinginn en hann fylgist vel með því hvað fer ofan í okkur.
Leikmenn WBA taka allir fæðubótaefni og passar næringarfræð-
ingurinn vel upp á að þau séu innan löglegra marka. Auk þess
fylgist hann vel með ef menn eru að taka einhver lyf vegna
veikinda t.d. eins og hóstamixtúru o.fl., þannig að það er vel fylgst
með okkur."
Farið þið reglulega í lyfjapróf? ,,Já, það er fylgst mjög vel með
þessu hjá enska knattspyrnusambandinu og menn frá þeim geta
dottið inn hvenær sem er, jafnvel á æfingar og einnig í leiki þannig
að eftirlitið er strangt."
Þú ert orðinn 29 ára og þótt þú sért farinn að eldast þá ertu
enn á besta aldri, en finnst þér orðið erfiðara að koma þér í
form nú en þegar þú varst yngri? „Það hefur mikið breyst hvað
varðar sumrin. Hérna áður fyrr tók maður sér alveg frí í tvo mánuði
en í dag hægir maður vissulega á sér strax eftir mót en heldur sér
við og tekur ekkert frí. Ef ég tæki frí núna þá væri ég alltof lengi að
koma mér í gang aftur og það þyrfti heljarinnar átak til að koma sér
í toppform aftur.“
Eru leikmönnum sett ströng boð og bönn, t.d. varðandi
áfengi? „Já, þá má t.d. ekki sjást til okkar fjórum sólarhringum
fyrir leik á skemmtistöðum og börum sem selja áfengi. Það þýðir
jafnvel ekkert fyrir okkur að fara á slíka staði stuttu fyrir leik þótt
leikmenn séu ekki að fá sér í glas. Það er nóg að fólkið sjái þig á
þessum stöðum og þá er það fljótt að leggja saman tvo og tvo og
kjaftagangurinn og slúðrið fer í gang þannig að það er vissara að
halda sig heima. Leikmenn fara því eftir þessu enda er ekkert
annað hægt.“
Fara menn þá nokkurn tímann út að skemmta sér þegar
leikjadagskráin er þétt? ,,Það kemur fyrir að menn fari út að
skemmta sér en fara þá mjög hóflega í hlutina. Það hefur mikið
breyst hérna í Englandi frá því að ég fyrst kom hingað 1994. Þá
fóru menn beint eftir leiki á barinn og fengu sér nokkra bjóra í
staðinn fyrir að fá sér einhverja íþróttadrykki og síðan var djúsað í
rútunni á leiðinni heim. Nú er alveg tekið fyrir þetta enda er fótbolt-
inn orðinn tengdari viðskiptum í dag en í gamla daga og nú er t.d.
ástand leikmanna miklu betra en það var fyrir nokkrum árum.“
Þú ert búinn að vera í þessu lengi og það vilja sjálfsagt margir
feta í fótspor Lárusar Orra Sigurðssonar. Vilt þú koma ein-
hverjum skilaboðum til ungu kynslóðarinnar sem horfir
vonaraugum til atvinnumennskunnar? „Ég held að ég sé lifandi
dæmi um það að maður þarf ekki að fæðast með einhverja
ægilega hæfileika sem knattspyrnumaður til að geta náð langt í
fótbolta. Maður þarf bara að vinna hart og leggja mikið á sig. Þegar
ég var yngri var faðir minn strangur við mig og um helgar var ég
settur í rúmið snemma á kvöldin þegar maður vildi heldur vera í
bænum að skoða stelpurnar. Þannig að ef maður er tilbúinn að
leggja mikið á sig, viljinn er fyrir hendi og menn eru nógu harðir við
sjálfa sig þá er allt hægt.“
Þeim sem vilja síðan fylgjast með Lárusi Orra í vetur er bent
á heimasíðu hans þar sem hægt er að finna reglulega pistla
um gengi hans í deildinni og almennt um boltann. Heimasíðan
er á ensku og er slóðin: larussigurdsson.com
num.'