Skinfaxi - 01.08.2002, Side 33
Forvarnablað Skinfaxa
>s______________________________________________
leiðingar eineltis eru svo brjálæðislega
margar. Það er því af gríðarlega mörgu að
taka í þessu og það má ekki bara taka á
einelti heldur þarf að taka á öllu í kringum
það.“
Hver er einfaldasta skýringin á orðinu
i einelti? ,,Það eru til margar útskýringar og
kannski er sú einfaldasta og þekktasta:
„Einelti er þegar einn einstaklingur eða fleiri
ráðast endurtekið að einum einstaklingi
eða fleirum í styttri eða lengri tíma. Þá með
áreiti, hvort sem það er líkamlegt, andlegt,
efnislegt eða munnlegt." Eins og einhver
sagði þá geta högg tungunnar líka brotið
bein.“
Sjálfsmorðin fleiri en menn halda
Hverjir verða aðallega fyrir einelti? „Allir,
það er enginn undanskilinn. Kannski eru
þeir sem eru veikir fyrir og með lítið sjálfs-
traust auðveldari bráð. Þeir eru líklegri fórn-
arlömb og það er auðveldara að hræða þá
til lengri tíma. Sterku einstaklingarnir í sam-
félaginu verða líka fyrir þessu, en þeir eru
harðari af sér og því varir eineltið í styttri
tíma hjá þeim. En það segir sig sjálft að ef
einstaklingur er sagður Ijótur og það ítrekað
endurtekið heilan vetur, og bekkurinn tekur
þátt í því, fer þolandinn að trúa því.
Á íslandi eru framin á bilinu 60-70 sjálfs-
morð á ári. Ég held að þau séu hátt í
hundrað. Sjálfsvíg er ekki bara þegar
einhver hangir í snörunni. Sjálfsvíg geta
gerst á löngum tíma. Ég held því að það sé
aldrei hægt að festa fingur á það hve
margir fyrirfara sér vegna félagslegs áreitis
f samfélaginu. Svo eru krakkar sem hafa
reynt að fyrirfara sér alveg niður í sex ára
aldur, sem barna- og unglingageðdeildin
hýsir. Þetta eru krakkar sem við gleymum,
enda neitum við að trúa því að sex ára
gamalt barn geti reynt að fyrirfara sér, en
þau gera það og hika ekki við að gera það.“
Og ástæðan er einelti? „Jaa, ekki er það
áfengið eða fíkniefnin á þessum aldri. Það
hljóta að vera einhverjar félagslegar
aðstæður sem skapa þetta og þau vilja
bara ekki lifa.“
i Þú hefur haldið í kringum 360 fyrirlestra
og talað við fullt af börnum, unglingum
og fullorðnu fólki. Lenda allir í einelti
einhvern tímann á lífsleiðinni?
„Já, ég mundi segja það. Það þekkja allir
tilfinninguna. Einelti er fyrir mér þolandi,
gerandi og áhorfandi. Þetta er allt undir
sama hatti og ég geri nánast engan
greinarmun þarna á milli.“
En það hlýtur að vera erfiðast að vera
þolandinn? „Ef við pælum aðeins í því þá
er það kannski ekki erfiðast. Kannski er
erfiðara að vera gerandinn. Við verðum að
átta okkur á að börn eru tilfinningalega van-
þroskaðir einstaklingar miðað við fullorðna.
Gerendur og þolendur eru einstaklingar
sem þurfa aðstoð samfélagsins og aðstoð
okkar hinna. Umræðan má ekki leiðast út í
það sem hún hefur verið að gera undan-
farið um vonda barnið og góða barnið.
Þessi tilfelli eru eins misjöfn og þau eru
mörg og hvert þeirra verður að taka sem
sérstakt mál.“
Er það einhver ákveðinn aldur sem
lendir frekar í þessu? „Þetta byrjar strax
hjá börnum í leikskóla, en þetta er algeng-
ast hjá grunnskólakrökkum, þau eru í
mestu hættunni.“
Og þroskast menn síðan upp úr þessu?
„Já, en þó ekki alltaf. Þetta fylgir sumum
endalaust og ég hef verið að fá bréf frá
fimmtugu fólki. Sá elsti sem hefur sent mér
upplýsingar um sig er rúmlega áttræður og
hann sendi mér 168 síðna ævisögu sína,
sem er einelti út í gegn. Hann hefur því
upplifað einelti alla sína ævi.“
Hvar á einelti sér helst stað? ,,í grunn-
skólum landsins, en einelti á sér líka stað á
fleiri stöðum eins og vinnustöðum. Það
þekkja allir „vinnustaðafíflið" sem allir gera
grín að eða nota sem skotspón. Einelti á
sér einnig stað á heimilum, t.d. á milli hjóna
og milli barna og foreldra. Einelti á sér því
alls staðar stað, það er bara mismunandi í
hvaða mynd það er.“
Kennarar geta ekki faðmað
alla krakka
Hvernig eiga foreldrar að bregðast við ef
þeir komast að því að barnið þeirra er
lagt í einelti? „Foreldrar verða að líta
aðeins í eigin barm. Foreldrar eru hættir að
taka ábyrgð eins og þeir eiga að gera.
Línan hefur ekki verið dregin nógu skýrt á
milli heimila og skóla. Hvar er uppeldis-
línan? Kennarar geta ekki faðmað alla
krakka sem koma í skólann og sagt þeim
hvað þeir elski þau mikið. Þetta er hlutverk
foreldra og þeir verða að gefa sér tíma í
þetta. Við verðum að fara aftur í fornaldir
og skoða fjölskylduhagi okkar og átta okkur
á að fjölskyldan er besti sálfræðingurinn.
Fólk verður að fara að hugsa, hvað get ég
gert til að hjálpa fjölskyldunni minni."
Hefur þá einelti aukist mikið á undan-
förnum árum í nútímaþjóðfélagi þar sem
efnishyggjan er allsráðandi og foreldrar
verða báðir að vinna úti á kostnað barn-
anna? „Ég veit það ekki. Ég forðast allar
skoðanakannanir því þær eru Ijót mynd af
fortíðinni og segja okkur ekkert um það
hvernig staðan er í dag eða á morgun. í
rauninni er ég aðallega ánægður með að
umræðan hefur verið að opnast en ég er
ekki frá því að einelti hafi verið að aukast
og breytast örlítið. Krakkarnir eru farnir að
nota vopn meira og ofbeldið hefur aukist,
morðhótanir, SMS-skilaboð, ofsóknir, þetta
hefur allt saman aukist gríðarlega mikið,
þannig að einelti er með allt öðrum hætti í
dag. Aðferðirnar eru orðnar svo háþróaðar
og tæknilegar og þær breytast stöðugt á
milli ára.“
Foreldrar verða að þekkja
barnið sitt
Geta foreldrar barna sem verða fyrir
einelti áttað sig á því þegar barnið þeirra
er lagt í einelti? „Já, já, en foreldrar verða
þá að þekkja börnin sín tilfinningalega séð.
Hvernig líður barninu t.d. þegar það sér
ástarsenur í kvikmyndum? Það fer alltaf að
hlæja, það verður grimmt. Foreldrar verða
að þekkja innræti barnsins. Þá ferðu allt í
einu að skilja að barn sem elskaði að horfa
á ástarsenur í mynd fer allt í einu að
slökkva á sjónvarpinu eða fara fram þegar
slíkar senur eru sýndar. Barnið hættir að
borða eðlilega, pissar undir á næturnar, vill
allt í einu láta hætta að keyra sig í skólann,
mætir seint í skólann og kemur seint heim.
Af hverju? Af því að það fer alltaf lengri leið
f skólann eða heim úr skólanum. Þetta geta
allt verið afleiðingar eineltis, en fremst af
öllu verða foreldrarnir að þekkja barnið sitt
til að átta sig á þessu. Vandamálið núna er
að foreldrarnir eru farnir að setja kröfurnar
á skólana. Þeir eiga að sjá til þess að
börnin komist heil á húfi frá A til Ö. Það
gengur ekki og skólastjórnendur eru líka
foreldrar og þeir þurfa að hugsa um sín
börn. Þeim á ekki að líða eins og tauga-
sjúklingum heima hjá sér á kvöldin með
áhyggjur 15 heimila á bakinu og vanlíðan
einhverra annarra barna. Ástandið er orðið
mjög alvarlegt."
Einelti getur átt sér stað í mörg ár. Þetta
er ekki bara tímabundið á meðan þú ert
í grunnskóla og síðan búið? „Nei, alls
ekki. Þeir sem verða fyrir einelti verða að
gera upp við sig hvort þeir ætli að vera
aumingjar alla ævi, og labba með veggjum
alla sína ævi, eða rísa upp gegn mótlætinu.
Einelti er mótlæti og öll verðum við fyrir
mótlæti á lífsleiðinni. Einhvern tímann á
lífsleiðinni fáum við nóg af mótlætinu og
rísum upp gegn því. Það er ekkert flóknara
en það, en að sjálfsögðu getur verið erfitt