Skinfaxi - 01.08.2002, Side 36
Jón Arnár Stefánsson
Það verður mikil eftirsjá að hinum unga og
hæfileikaríka körfuknattleiksmanni Jóni Arnóri
Stefánssyni í vetur en hann ákvað að skella sér á
vit ævintýranna í sumar, þegar hann gerði eins árs
samning við þýska úrvalsdeildarliðið Trier. Jón er
aðeins 20 ára en hefur verið einn besti
körfuknattleiksmaður íslendinga síðustu tvö árin
og er í raun hinn íslenski Michael Jordan.
Valdimar Kristófersson hafði samband við kappann
og ræddi við hann um atvinnumennskuna og
íslenskan körfubolta.
Mamma hefur kokkað ofan í
mig toppmat síðan ég
var á brjósti!
Jón Arnór lék meö KR hérna heima, en
af hverju varö KR fyrir valinu á sínum
tíma?
,,Ég valdi KR út af því að það var ekkert lið
með körfuboltadeild í mínu hverfi. Vlnir
mínir og strákar úr hverfinu voru farnir að
sækja æfingar í KR þannig að maður flaut
með.“
Alltaf verið draumur
Og nú ertu kominn í atvinnumennsk-
una?
„Það hefur alltaf verið draumurinn að fara í
atvinnumennsku en það gerðist kannski
fyrr en ég ætlaði. Það var alltaf á dagskrá
að fara til Ameríku í háskóla og valið stóð
milli atvinnumennsku í Evrópu eða háskóla
í Bandaríkjunum. Það gekk ekki upp að
fara til Ameríku þannig að Evrópa varð fyrir
valinu og ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun.“
Varstu búinn að stefna á þetta lengi?
„Já, ég hef alltaf stefnt að því síðan ég
byrjaði að spila, ekki spuming."
Þú gerðir eins árs samning - þú hefur
ekki viljað binda þig lengur?
„Ekki svona á fyrsta árinu mínu. Ég hefði
samið til tveggja ára í mesta lagi en eitt ár
hentaði mér mjög vel. Ég fæ tækifæri til að
spila mikið hér í Trier og sanna mig og svo
sjáum við til hvað setur.“
Hvernig er körfuboltinn í Þýskalandi
samanborið við þann íslenska?
„Þýska deildin er mjög sterk og örugglega
sú fjórða sterkasta í Evrópu segja margir.
Samanborið við íslensku deildina þá er
munurinn mikill. Hér eru aðeins atvinnu-
menn sem vinna við það að spila körfubolta
og í því liggur munurinn held ég.“
Nú hafa Þjóðverjar verið að láta að sér
kveða í NBA-boltanum - Er stefnan sett
þangað?
„Nei, ég get ekki sagt að stefnan sé sett
þangað. Ég vil bara verða eins góður
körfuboltamaður og ég get orðið. Ef ég
verð nógu góður til að spila í NBA þá væri
það náttúrulega toppurinn."
Nú fer körfuboltinn að byrja heima á
íslandi. Er KR-stórveldið ekki hrunið
með brotthvarfi þínu?
„Það kemur maður í manns stað. KR-liðið
verður mjög breytt á komandi tímabili,
margir farnir en nokkrir komnir í staðinn
líka. Það eru ungir strákar þarna sem eru
hungraðir í að fá að spila þannig að þeir
eiga eftir að pluma sig ágætlega."
Keflavík, KR, ÍR og UMFN
bítast um bikarinn
Hverjir verða að bítast um bikarinn?
„Keflavík, KR, ÍR og UMFN verða þarna í
toppbaráttunni. Þetta á eftir að verða mjög
skemmtilegt og spennandi tímabil held ég.“
Hvað finnst þér um íslenskan körfubolta
- stendur hann langt að baki þeim
þýska eða evrópska?
„Ég myndi segja að hann ætti svolítið í land
með það að ná þýska boltanum og þeim
evrópska. Þetta er áhugamannabolti heima
og það er ástæðan fyrir því að hann stend-