Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 4
Sverrir Þór Sverrisson Flestir ef ekki allir kannast við „Sveppa" og hans uppátæki í sjónvarpsþættinum 70 mínútum á Popptíví. Sveppi, eða Sverrir Þór Sverrisson eins og hann heitir með réttu, byrjað í 70 mínútum árið 2000 þegar þátturinn hóf göngu sína. Hann var þá einungis aðstoðarmaður og lék í földu myndavélinni og var með dagskrárlið sem hét Sveppahorn en hefur frá lok árs 2001 verið einn af stjórnendum þáttarins ásamt þeim Sigmari Vilhjálmssyni og Auðunni Blöndal. Þáttur þeirra félaga nýtur mikilla vinsælda og hugmynda- auðgi þeirra félaga er mikill. Skinfaxi hitti Sveppa að máli yfir kaffibolla á skrifstofu þeirra féiaga og spurði hann út í hina heilögu þrenningu, þáttinn o.fl. Auðunn fer alltaf að gráta enda er hann yngstur - segir Sverrir Þór Sverrisson, ööru nafni Sveppi um félaga sinn á Popp Tíví „Þremenningarnir" virðast ná vel saman í þáttunum og blaðamanni Skinfaxa lék forvitni á að vita hvort þeir hefðu þekkst áður en þeir byrjuðu með þáttinn? „Nei, nei, við þekktum ekkert hvor annan. Ég vissi aðeins hver Simmi var þegar hann lék handbolta með Val en ég þekkti hann ekki neitt og sama er að segja af Auðunni." Hvernig kom það til að þú varst beðinn um að vera með í þættinum? „Ég stundaði nám í FB og tók félagslega þáttinn fram yfir námið ef svo má að orði komast. Ég tróð mér í og tók þátt í öllum leikritum og söngleikjum sem settir voru upp þannig að það bar „örlítið" á manni. Simmi var með útvarpsþátt á Mónó á þessum tíma og hann fékk mig til að ganga hringinn í kringum landið sem ég gerði. Eftir að Simmi byrjaði með þáttinn bað hann mig að koma og sjá um vissa dag- skrárliði í þættinum." Gera grín af sjálfum sér Um hvað snýst síðan þátturinn 70 mín- útur? „Þátturinn er mjög fjölbreyttur og er dálítið það sem okkur dettur í hug. Við stjórnum ekki eingöngu þættinum heldur tökum við öllum áskorunum sem okkur berast og framkvæmum þær sjálfir. Við gerum í raun jafn mikið grín af okkur og öðru fólki. Okkur er því ekkert heilagt í þessu og við sýnum allt sem okkur dettur í hug. Við erum ekkert að fela eitthvað eða klippa eitthvað út.“ Er þátturinn ekki ritskoðaður? „Ekki mikið. En við pössum okkur á því að fara ekki yfir ákveðna gráa línu sem við. Við vinnum þó mikið í kringum hana. í raun er þetta bara vitleysisbull eða vitleysis- gangur sem skaðar engann nema kannski mest okkur sjálfa og það er allt í lagi.“ Hvað gerði Sveppi áður en hann byrjaði í 70 mínútum? „Ég var að vinna í grænmetinu í Hagkaup og það var frábært," segir hann hlæjandi- „Þaðan fór ég á grænmetislager Hagkaups. Ég var síðan ekki lengi að ákveða að faera

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.