Skinfaxi - 01.08.2003, Page 16
Skaðsemi eiturlyfja
Hvað er það sem gerir eiturlyf svona
hættuleg? Hér á síðunni getur þú
fengið upplýsingar um hvaða áhrif
einstök eiturlyf hafa á
líkamsstarfsemina. Láttu ekki
vanþekkingu koma í veg fyrir að þú
getir orðið ættingja eða vini að liði.
Eiturlyf eru hættuleg - liggur
þér á að komast í gröfina?
KANNABISEFNI
Kannabisefni (maríjúana, hass og hassolía)
safnast upp í heila og kynfærum og valda
hröðum persónuleikabreytingum. Mjög lúmsk
vímuefni. Hið vímugefandi efni er skammstafað
THC. Það er ekki vatnsuppleysanlegt, heldur
binst það fitjuvefjum líkamans, en fituríkustu
líffærin eru heili og kynfæri - eggjastokkar og
eistu. Þar situr efnið löngu eftir að víman hefur
fjarað út. 7-9 daga eftir neyslu er helmingur
þess ennþá eftir í líkamanum. Þar sem
fráhvarfseinkenni eru ekki jafn heiftarleg og
margra annarra vímugjafa s.s. áfengis eða
amfetamíns álíta margir neytendur að efnið sé
tiltölulega meinlaust, og neyta þess oftar fyrir
bragðið. Afleiðingin er sú að efnið hleðst hratt
upp í heilanum og mjög fljótlega má fara að
greina breytingar á persónuleika neytandans.
Viðkomandi einstaklingur verður sljór, latur,
kærulaus og minnið þverr. Ahugamálin verða
einskis verð, metnaður og geta í námi og starfi
ásamt líkamlegri umhirðu víkja fyrir hirðuleysi.
Einföldustu verkefni daglegs lífs vaxa mönnum
í augum; engu líkara er en að persónuleikinn
fletjist hreinlega út. I þessari grámygluveröld
eiga örvandi efni á borð við kókaín og
amfetamín greiða leið að neytandanum.
Merki um kannabis nevslu:
Hávært tal, hlátur í fyrstu. - Neytendur verða
slæptir á síðari stigum vímunnar - Minnistap -
Augu eru blóðsprungin - Lykt vegna
reykinganna - Vinnusemi og námsárangur
minnkar - Minna er hugsað um almennt
hreinlæti - Ofsóknarhugmyndir, og einvera -
Þunglynd og geðsveiflur, skortir áræðni. -
Brenglað tímaskyn - Tæki og tól sem neytendur
hafa meðferðis eru m.a. hasspípur (vatnspípur)
vindlingapappír, o.þ.h.
AMB’ETAMrN & KÖKAÍN
Amfetamín og kókaín eru efni sem hafa svipaða verkun. Þau virka
örvandi á líkamsstarfsemi, hugsun og tilfinningar með tilheyrandi
öfgum í framkomu og hegðun. Hreyfingar verða hraðar, vöðvar
spenntir, augu uppglennt og augasteinar stórir. Neytandinn verður ör,
skapbráður, missir matarlyst og á erfitt með svefn. Eftir neyslu í
nokkurn tíma fer að sjá mikið á útliti fólks, það horast og lítur sjúkega
út. Fljótlega fer að bera á ranghugmyndum og geðveikiseinkennum á
borð við ofsóknaræði. Við þetta bætist að efnin eru mjög vanabindandi
og mörg hver dýr. Eina leiðin til að fjármagna neysluna er oft að fremja
lögbrot á borð við innbrot og vopnuð rán. Mörg fólskuverk hafa verið
framin vegna þessarar blöndu fíknar og geðveilu.
Merki um amfetamín- og kókaínnevslu
Víð sjáöldur
Þurrkur í munni og nefi
Andremma
Stöðug væting vara
Ofvirkni, getur ekki verið kyrr,
Ahugaleysi á mat og svefni
Skapgerðarsveiflur
Þrasgirni
Tilraunadýr taka
kókaxn fram yfir
fæðu og vatn og
halda áfram að
neyta þess þar til
þau detta niður
dauð...
LSD
Ofskynjanir sem leitt geta til varanlegrar geðveiki. LSD veldur
ofskynjunum - ofheyrnum og ofsjónum. Efnið blckkir öll skynfæri,
tilfinningar hugsun. Alvarleg geðveikieinkenni eru skammt undan og
verða í mörgum tilfellum varanleg.
Merki um LSD nevslu:
Víkkuð sjáöldur. Hækkaður líkamshiti, sviti og svitalykt. Brenglað sjón-
heyrnar- og snertiskyn. Brenglað tíma- og staðarskyn
...áhrifin af lsd geta sprottið upp
án fyrirvara löngu eftir að efnisins
er neytt...