Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 30
Olís dreifir forvarnablaði Skinfaxa
Um árabil hefur Olíuverzlun íslands hf.
- Olís komiö að fjölbreyttum samfélags-
legum verkefnum. Verkefni þessi eru
jafn ólík og þau eru mörg en þó má
skipta þeim gróft í þrjá flokka: íþrótta,-
mannúðar,- og umhverfismál. Yfirskrift
þessa blaðs er „Forvarnir" og því er
ekki úr vegi að fjalla um með hvaða
hætti þau verkefni sem Olís kemur að
tengjast forvörnum.
Bensín og forvarnir
Hvað leggur Olís að mörkum til forvarnarstarfs?
Forvarnastarf í víðum skilningi þess
orðs er umfangsmikið starf og krefst
aðkomu og samvinnu fjölmargra
aðila. Það er því ekki hægt að segja
að Olís eitt og sér sinni forvarnar-
starfi í þeim skilningi. Slík fullyrðing
væri móðgun við þá mörgu aðila
sem sinna því starfi af miklum
eldmóði og hugsjón. Hins vegar má
með sanni segja að Olís komi að
forvarnarstarfi á einn eða annan
hátt, þó einkum með fjárstuðningi.
Oft vantar einmitt fjármagn til að
hrinda góðum hugmyndum í fram-
kvæmd og til að auðvelda sjálfboða-
liðum og starfsfólki ýmissa félaga-
samtaka störfin. Það er þar sem Olís
kemur að forvarnarverkefnum, í
fjármögnunarhlutanum.
Olís er aðili að samfélaginu
Ástæða þess að Olís hefur áhuga á að
koma að verkefnum tengdum for-
vörnum er ekki eingöngu tengd ímynd
félagsins þó að vissulega megi segja
að stuðningur við slík verkefni hafi
jákvæð áhrif á ímyndina. Olís er ein-
faldlega aðili að samfélaginu að sama
skapi og önnur fyrirtæki, stofnanir, skó-
lar, sveitarfélög, einstaklingar og fél-
agasamtök. Við lítum þannig á það
sem samfélagslega skyldu okkar að
leggja eitthvað að mörkum til sam-
félagsins.
Eins og gefur að skilja eru ætíð einhver
takmörk fyrir því að hve miklu leyti hægt er að
styðja við verkefni af þessum toga. Fyrir-
spurnir um styrki til ýmissa verkefna, hvort
sem um er að ræða verkefni tengd forvörnum
eða önnur óskyld verkefni, berast fyrirtækinu
daglega og skiptir sfundum tugum í viku
hverri. Þrátt fyrir einlægan vilja til að láta
fjármagn af hendi rakna til góðra málefna þá
er ógjörningur að verða við öllum þeim styrk-
beiðnum sem fyrirtækinu berast.
íþróttir ein sterkasta forvörnin
Rannsóknir hafa sýnt fram á að íþróttaiðkun
er ein sterkasta forvörn sem til er gegn vímu-
efnum og óreglu hverskonar, auk þess sem
þær stuðla að heilbrigðu líferni, sjálfstrausti
og metnaði. Olís leggur mikið upp úr sam-
starfi og stuðningi við
íþróttahreyfinguna i landinu og
styður við bakið á fjölmörgum
íþróttafélögum.
Garðabæ, Handknattleiksdeild ÍR, Knatt-
spyrnudeild Breiðabliks, Handknattleiksfélag
Kópavogs, Fimleikafélag Hafnarfjarðar,
íþróttafélagið Leiknir, Hauka og Val. Á Nes-
kaupstað er íþróttafélagið Þróttur sem Olís
hefur stutt undanfarin ár og hefur stuðningur
við þá verið staðfestur til næstu 2ja ára. Af
öðrum félögum á landsbyggðinni sem Olís
styður má nefna KA á Akureyri, íþróttafélag
Akraness, Ungmennafélag Grindavíkur,
Körfuknattleiksdeild Snæfells og Frjáls-
íþróttadeild Tindastóls.
Þá hefur Olís styrkt akstursíþróttir undanfarin
ár m.a. með samningi við Jón Ragnarsson
rallýkappa og syni hans. Auk þess að styrkja
íþróttafélögin beint með ýmsum hætti þá er
Olís kostunaraðili að Olíssportinu á Sjón-
varpsstöðinni Sýn auk þess sem félagið
Félagið hefur m.a. verið einn
ötulasti stuðningsaðili Fjölnis í
Grafarvogi frá stofnun þess
félags og tekið þátt í að byggja
upp starf æskufólks í hverfinu.
Knattspyrnufélagið Þróttur hefur
lengi tengst Olfs og var nýlega
gengið frá nýjum samningi milli
félaganna. Það eru þó nokkur
önnur félög sem Olís styrkir og
má þar helst nefna Stjörnuna í