Skinfaxi - 01.08.2003, Side 34
■€«#fö«-&í-ÁtéeteééHW'
Nú eruð þið að brydda upp á ákveðnum
nýjungum og fara nýjar leiðir með þessu
námskeiði. Þetta forvarnstarf sem hefur
verið unnið með hingað til er það barn
síns tíma þ.e.a.s. þessi fræðsla og að
tala við krakkana og benda þeim á
hættuna?
„Alltaf er þörf á fræðslu og forvarnarstarfi.
Þessi fræðsla virkar vel á marga unglinga
en það eru alltaf einhvejir sem af ýmsum
ástæðum taka ekki til sín fræðsluna og
þurfa þá annars konar vettvang.”
Sum eru illa tengd við
tómstundastarfið
Þið eruð með þessu námskeiði að búa
til ákveðin verkefni fyrir krakkana með
listiðkun þannig að þau hafi eitthvað
spennandi fyrir stafni. Er vandamálið í
dag að það er ekkert fyrir krakkana að
hafa?
,,Að hluta til er ekki nóg fyrir stafni fyrir
þessa krakka en að hluta til þarf að hjálpa
þessum krökkum að finna einhverjar aðrar
leiðir. Þau bæði sjá ekki það sem er í boði
og sum eru svo illa tengd við tómstunda-
starfið að þau vita ekki hvað er að gerast
Dr. Milkman talar um að námskeiðið taki
heilt skólaár eða níu mánuði. En er ekki
nauðsynlegt að vera með svona nám-
skeið allt árið um kring. Unglingarnir
taka sér varla frí frá neyslunni yfir
sumartímann? „Nei það gera þeir ekki.
Það getur reynst erfitt að ná til þeirra í
sumarfríum og við bjóðum þess vegna, allt
árið, upp á annað úrræði sem heitir íhlutun.
Það er einstaklings og fjölskyldu miðuð
meðferð í félagslegu umhverfi unglingsins.
Hvað varðar sumarið þá lenda unglingarnir
einmitt í mestu vandræðunum yfir sumarið
því þá er minna aðhald heima fyrir og engir
skólar. Þegar skólinn byrjar aftur og liðnir
eru 1-2 mánuðir þá fara hlutirnir að komast
upp því sá sem hefur misstígið sig yfir
sumarið fer t.d. að mæta illa í tíma, hann
breytist, hættir að skila verkefnum o.s.frv.
Þannig að í raun er ekki síður þörf á að
veita aðhald yfir sumarið”.
Fyrir hvaða aldur er námskeiðið hjá
ykkur og hvernig geta þeir sem hafa
áhuga á komist á námskeiðið?
„Námskeiðið er fyrir 15 til 18 ára. Hvað
varðar þátttöku á námskeiðið þá eru
tilvisandi aðilar að námskeiðinu þeir aðilar
sem hafa með velferðarmál barna og
unglinga að gera.”
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast
í síma 534 5444, á heimasíðunni
www.nyleid.is eða senda tölvupóst á
nyleid@nyleid.is
þar.”
Verður þetta námskeið hjá ykkur svipað
því sem gerist í skólum með heimavinnu
t.a.m.?
„Nei, það verður ekki mikil
heimavinna. Verkefnin ver-
ða flest unnin á staðnum.
En við ætlum að vera í
samvinnu við skólana
þannig hluti af Lífs-listin
verður metin inn í skólana.
Það er mjög mikilvægt að
vera í samvinnu við skól-
ana þannig að unglingurinn
komist alltaf til okkar þótt
það rekist á við einhvern
tíma í skólanum. Þá vita
skólastjórnendur af þeim og
hvað þeir séu að gera hjá
okkur:”
Eitt af lykilhugtökum
ykkar er “vellíðan án
vímuefna.” Nú virðist það
vera algengt sjónarmið
hjá unglingum í dag að
það sé engin skemmtun
án vímuefna. Er sú hugs-
un, að skemmta sér án
vímuefna, hverfandi í
dag? „Já, ég hef heyrt þetta og tel þetta í
raun vera mjög almennt og virðist það ekki
bara við um unglinga heldur fullorðna líka.
Eg held að
unglingarnir séu
alveg eins og við
fullorðna fólkið og
geri það sem fyrir
þeim er haft. Ég var
t.d. að hugsa síðast
í gær, að það var
auglýsing í sjón-
varpinu um fjölskyl-
duhátíð um versl-
unarmannahelgina
með mynd af bjór-
flösku. Væntanlega
styrkir viðkomandi
aðili mótið eða
auglýsinguna.
Hvaða skilaboð eru
þetta?
Ég held að unglingarnir séu alveg eins og
við fullorðna fólkið og geri það sem fyrir
þeim er haft. Ég var t.d. að hugsa síðast í
gær, að það var auglýsing í sjónvarpinu um
fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina
með mynd af bjórflösku.
Væntanlega styrkir við-
komandi aðili mótið eða
auglýsinguna. Hvaða skila-
boð eru þetta? Það er því
ekki auðvelt að segja við
16 ára ungling að nú þurfa
hann að vera edrú.”
Þetta verkefni er sótt í
smiðju dr Harveys Milk-
man próferssors í Ban-
daríkjunum sem hefur
þróað forvarnar- og
meðferðarúrræði fyrir
unglinga. Þið ætlið að
gera tilraun með þetta í
vetur, hvað telur hann að
slíkt námskeið taki langa
tíma?
„Hann leggur þetta þannig
að upp að þetta taki heilt
skólaár. Þetta er 3x 3
mánuðir og okkar nám-
skeið er tilraunaverkefni í
vetur. Síðan verður nám-
skeiðið tekið út af utanaðkomandi aðilum.
Ef vel tekst til munum við þróa þetta enn
frekar.”