Skinfaxi - 01.08.2005, Qupperneq 22
fréttir úr hreyfingunni:
IIMFÍ veitt umhverfisverilaun Reykjunesbœjar
Ungmennafélag Islands og versl-
unin Persóna við Hafnargötu
fengu á dögunum Umhverfisverð-
laun Reykjanesbæjar árið 2005.
Umhverfis- og skipulagssvið
Reykjanesbæjar valdi aðilana tvo
og veitti þeim viðurkenningar auk
verðlaunagrips sem var táknrænt
skreyttur kústur
I umsögn USR segir að UMFI
hafi lagt rækt við umhverfismál
að undanförnu og er skemmst
að minnast viðurkenningar sem
félagið veitti Bláa hernum í Reykja-
nesbæ fyrr í sumar í samvinnu
við Pokasjóð. Leit bærinn á þetta
sem tækifæri til að endurgjalda þá
viðurkenningu.
Helga Guðjónsdóttir, varafor-
maður UMFI, veitti verðlaununum
viðtöku ásamt framkvæmdastjór-
anum, Sæmundi Runólfssyni, og
Einari Haraldssyni, stjórnarmanni
og formanni Iþrótta- og ung-
mennafélags Keflavíkur
Umhverfisverðlaun Reykjanesbæjar veitt. Frá vinstri: Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFI, Einar
Haraldsson, stjórnarmaður I UMFI, og Helga Guðjónsdóttir, varaformaður UMFI. Lengst til hægri erÁrni Sigfússon,
bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
I
heimsókn hér ií londi
UWGMENNAFELAG
ÍSLANW i
Á dögunum voru í heimsókn hér á landi
forsvarsmenn Sokol sem eru systursamtök
UMFI ÍTékklandi. GestirnirfráTékklandi
komu víða við í heimsókn sinni, voru
upplýstir um starfsemi UMFI og skoðuðu
íþróttamannvirki.Tékkunum leist afar vel á
landsmótin og hyggjast koma slíkum mótum
á í heimalandi sínu.
Gott samstarf hefur verið á milli samtak-
anna í gegnum árin og í framtíðinni er stefnt
að enn nánari samvinnu.
Á myndinni með Tékkunum eru Birgir Gunnlaugsson,
stjórnarmaður í UMFI, Björn B.Jónsson, formaður UMFI,
Anna Möller, stjórnarmaður í UMFI, og Sæmundur
Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFI.
n
SKINFAXI - tímorit Ungmennafélags íslands