Skinfaxi - 01.02.2006, Page 5
Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ
Auður í arfi
Ágætu ungmennafélagar.
Vítt og breitt um landið, í litlum félögum og stórum, í þéttbýli og dreifbýli, búa ungmennafélagar
yfir miklum auði. Hér er ég ekki að tala um auð í formi peninga eða hlutabréfa, heldur auð í formi
þekkingar og reynslu. Hér á ég við menningararfinn sem varðveist hefur meðal félagsmanna okkar,
þekkinguna sem lærst hefur frá manni til manns. Þetta eru mikil verðmæti sem nýta má í smáu eða
stóru til að styrkja nærumhverfið og samfélagið sem við búum í.
Víða um land vantar afþreyingu fyrir ferðamenn, hvort heldur er um að ræða íslenska eða erlenda
ferðalanga. Þetta fólk þyrstir í fróðleik og sögustundir, sýningar og kennslu í þvi sem var. Við eigum
að halda til haga verkun og handbragði við matargerð fyrri tíma, aðferðum við byggingu torfbæja og
viðhaldi þeirra svo að eitthvað sé nefnt.
Það sem snýr ef til vill beint að okkur ungmennafélögum er varðveisla menningararfsins. Hvaða
leikir voru á gömlu ungmennafélagsskemmtununum - var ekki farið í leiki og dans til skiptis langt
fram undir morgun? Hvernig var fatnaður fólks, úr hverju var hann unninn og hvernig? Hver voru
gömlu leikföngin (leggir, skeljar o.s.frv.) og hvernig voru leikirnir sem börn og unglingar ástunduðu
áður fyrr?
Ungmennafélagar og aðrir, nú er lag
Nýtum okkur þennan arf í umhverfi okkar. Kennum öðrum, segjum frá og sýnum og komum þekk-
ingu okkar áfram til komandi kynslóða. Verklag og handbragð, sem mörg okkar þekkja til sjávar og
sveita og var með svipuðum hætti um aldir, hefur tekið örum breytingum hin síðustu ár og áratugi.
Enn er, sem betur fer, til fólk sem kann hin gömlu vinnubrögð og það ætti að vera hlutverk þess að
halda merkinu á lofti.
Mikil umferð inn á heimasíðu UMFÍ
Heimsóknir inn á heimasíðu Ungmennafélags íslands hafa
aukist til muna sfðasta hálfa árið. Mikil umferð var á vefnum
fyrir Unglingalandsmótið í Vík í ágúst sl. og fóru heimsóknir
suma dagana yfir fimm þúsund. Að jafnaði eru heimsóknir
inn á heimasíðuna um tíu þúsund á viku eða um 40 þúsund
á mánuði, stundum undir því og aðra mánuði þó nokkuð þar
yfir. Almenningur er í enn ríkari mæli en áður farinn að nota
sér heimasíður stofnana, fýrirtækja og félaga og sækja
sér þangað fróðleik og skemmtun af ýmsu tagi. Sér þess
stað hjá UMFI sem víða annars staðar.
Á heimasíðu UMFÍ er að finna ýmsan fróðleik, fréttir
og nytsamar upplýsingar sem koma ungmennafélögum
sem og öðrum í góðar þarfir. Uppfærsla á heimasíðu
UMFÍ fer fram með reglulegum hætti svo að upplýsingar
komi að sem bestum notum fyrir þá sem fara þangað inn.
Heimasíðan er nokkurs konar andlit hreyfingarinnar og því
er brýnt að hún sé í reglulegri skoðun og komi þeim sem
þangað fara inn að sem bestum notum.
Á heimasíðu UMFl er að finna aðgengi inn á ýmsar síður
tengdar aðilum sem UMFÍ vinnur með. Næsta Unglinga-
landsmót verður á Laugum í Þingeyjarsýslu um verslunar-
mannahelgina og til að afla sér upplýsinga um mótin er hægt
að fara inn á www.umfi.is/umfi/unglingalandsmot. Á 100 ára
afmæli UMFI 2007 verður Landsmótið haldið í Kópavogi.
Fyrir nokkru var opnuð heimasíða af því tilefni og er slóðin
www.umsk.is/landsmot.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 5