Skinfaxi - 01.02.2006, Side 9
♦
Efunglingum ersinnt
koma efnin alltaf í Ijós
Frjálsíþróttafólk tekur nýju höllinni í Laugardal fagnandi en varla
er haldið mót þar öðru vísi en að sett séu met og/eða flestir bæti
sinn persónulega árangur. Frjálsíþróttafólk var búið að bíða lengi
eftir þessari aðstöðu og árangurinn lætur ekki á sér standa.
Meistaramót [slands innanhúss 15-22 ára var haldið í byrjun
febrúar og náðist á heildina litið mjög góður árangur í flestum
greinum. Gísli Sigurðsson þjálfari hjá UMSS sagði aðstæðurnar í
Laugardalnum hreint út sagt frábærar.
„Maður er hreinlega með grátkökkinn i hálsinum yfir þeim
aðstæðum sem íboðieru hér" sagði hann í samtali við Skinfaxa.
„Það hefði verið gaman að því að hafa svona aðstæður þegar maður
varyngri. Ég er handviss um að þessar aðstæður eiga eftir að lyfta
frjálsum íþróttum upg á hærri stall. Þetta á eftirað verða íþróttinni til
framdráttar til lengri tíma litið, ekki bara i bættum árangri heldur
einnig í aukningu þátttakenda. Þessar aðstæðurýta undir það að
fleiri börn og unglingar fari að æfa frjálsar íþróttir en áður. Stór hluti
afstarfsemi okkar í frjálsu íþróttahreyfingunni er mikið mannahald á
mótum og ég er viss um að það verður mun betra að fá fólk til starfa
eftir að þessi aðstaða kom í Laugardalnum. í öllum tilfellum er þessi
aðstaða mikil lyftistöng fyriríþróttina," sagði Gísli Sigurðsson.
- Ertu sáttur við árangur þíns fólks á meistaramótinu?
„Já, ég er mjög sáttur við hann. Ég er með íSkagafirðinum frekar
lítinn hóp í unglingaflokki þessa stundina en hann æfirmjög vel og
sýnir framfarir í hverju móti. Það er gömul saga og ný að alltafer
mikill efniviður í Skagafirðinum. Efunglingunum er sinnt, þá koma
efnin alltafí Ijós, en því er ekki að neita að boltaíþróttirnar njóta
meiri vinsælda enn sem komið er. Þetta kemur þó til með að breytast
þegar fram i sækir. Við erum með fyrir norðan um tíu krakka sem æfa
mjög skipulega í unglingaflokkunum. Það eru mikil tugþrautarefni
ístrákunum og stúlkurnar eru sömuleiðis mjög efniiegar. Nóg er af
mótum fram undan og ég get ekki séð annað en að það sé bjartyfir
frjálsum íþróttum heima íSkagafirðinum."
Mæta með fjölmennan hóp að Laugum
- Mætið þið ekki með fríðan hóp keppenda á unglinga-
landsmótið að Laugum?
„Að sjálfsögðu og stefnt verður að því að allir sem vettlingi geta
valdið farið á mótið. Það er mikil tilhlökkun fyrir þátttöku eins og
jafnan áður," sagði Gísli Sigurðsson hress í bragði.