Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2006, Síða 13

Skinfaxi - 01.02.2006, Síða 13
Meistaramót íslands í fjölþrautum: Ungir og upprennandi báru sigur úr býtum Meistaramót íslands í fjölþrautum fór fram helgina 12.-13. febrúar í Laugardalshöllinni. Spennandi keppni var bæði í karla- og kvenna- flokki. Ungir og upprennandi frjálsíþróttamenn settu svo sannarlega svip sinn á mótið. íslandsmeistari í sexþraut kvenna varð Ágústa Tryggvadóttir, Umf. Selfoss, með 4327 stig, í öðru sæti varð Jóhanna Ingadóttir, IR, með 4223 stig, og í þriðja sæti varð Brynja Finnsdótt- irmeð4126 stig. Jóhanna leiddi 800 metra hlaupið fyrir síð- ustu greinina, en Ágústa kom rúmlega 13 sek- úndum á undan Jóhönnu í mark og tryggði sér sigurinn í þrautinni. Mikil þarátta var milli Sveins Elíasar Elías- sonar, Fjölni, og Halldórs Lárussonar, UMFA, um sigurinn í sjöþraut karla. Sveinn hafði sigur með 60 stiga forskoti á Halldór, hlaut samtals 4910 stig og bætti íslandsmet drengja og unglinga í greininni, en það var4672 stig í drengjaflokki (Sigurður Karlsson UMSS 1997) og 4719 stig í Sveinn Elías Elíasson, Fjölni, setti Íslandsmetí drengja- og unglingaflokki á Meistaramóti íslands i fjölþrautum. flokki 19-20 ára unglinga (Jónas Hlynur Hall- grímsson FH 2001). Halldór varð í öðru sæti, með 4850 stig, og í þriðja sæti varð Bjarni Malmquist Jónsson, USÚ, með 4125 stig. Þess má geta að Sveinn Elías er aðeins 16 ára gamall og því óhætt að segja að framtíðin brosir við honum. Keppt var í sexþraut meyja og sjöþraut sveina sem aukagreinum á mótinu og þarféllu (slandsmet í báðum flokkum. (sexþraut meyja sigraði Helga Margrét Þorsteinsdóttir, USVH, með miklum yfirburðum og bætti í leiðinni met systur sinnar, Guðrúnar Gróu, frá sl. ári, um 380 stig, hlaut samtals 4466 stig. í sjöþraut sveina hafði Einar Daði Lárusson, ÍR, einnig mikla yfirburði og sigraði með sam- tals 4612 stigum og bætti í leiðinni ársgamalt met Sveins Elíasar í þeirri grein um 3 stig, en það var4609 stig. Danska landsmótið verður haldið í Haderslev í sumar: Ógleymanleg og lærdómsrík þátttaka r# 29/6 • 2/7 Landsstævne haderslev2006 Danska landsmótið verður haldið í bænum Haderslev á Jótlandi dagana 29. júní til 2. júlí í sumar. Eins og oft áður stendur ungmennafélögum hér á landi til boða að taka þátt í þessu móti sem er stærsta mót sem haldið er í Danmörku. Mótið er haldið á fjögurra ára fresti og er búist við að þátt- takendur verði 40-50 þúsund í sumar. Keppt verður í öllum helstu íþróttagreinum, einstak- lings- og hópagreinum. Guðrún Nielsen íþrótta- kennari fór ásamt tíu öðrum á danska landsmótið sem haldið var á Borgundarhólmi 2003. Fleiri (slendingartóku þátt I mótinu og skemmtu allir sér hið besta. íslensku þátttakendurnir gengu allir saman inn á setn- ingarathöfn mótsins, allir eins klæddir og var þessi hópur sér- lega glæsilegur. „Þetta var alveg stórkostlegt mót og greinilegt að mikill und- irbúningur liggur að baki móti afþessari stærðargráðu. Þarna voru ógleymanlegar sýningar og lokaatriði mótsins hverfur mér seint úr minni. Aðbúnaðurinn var mjög góður og i heild má segja að þetta hafi verið meiri- háttar ferð. Ég hvet alla til að fara á landsmótið í Danmörku, þar er mikið að sjá og þátttakan er ekki síður lærdómsrík," sagði Guðrún Nielsen og bætti við að hún væri að velta því fyrir sér að fara á mótið í Haderslev. Allar nánari upplýsingar um mótið eru veittar í þjón- ustumiðstöð UMFI í Fellsmúla 26 eða á heimsíðu danska landsmótsins, www.dgi.dk/ landsstaevne.aspx SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands \ 3

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.