Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.2006, Qupperneq 17

Skinfaxi - 01.02.2006, Qupperneq 17
Sumarverkefni á vegum UMFÍ: Fyrir ungt fólk í sumar Sem endranær stendur Ungmennafélag íslands fyrir ýmsum áhugaverðum verkefnum fyrir ungt fólk í sumar. Ungmennavika NSU Fyrsta má telja ungmennavikuna fyrirfólk á aldrinum 16-25 ára en hún verðurað þessu sinni haldin að Varmalandi í Borg- arfirði dagana 9.-16. júlí í sumar. Um 100 ungmenni munu taka þátt í vikunni, frá öllum Norðurlöndunum, en frá upphafi hefur þessi vinsæla vika verið haldin til skiptis í norrænu löndunum. Ungmennafélag (slands hefur veg og vanda afvikunni að Varmalandi í samvinnu með norrænu æskulýðssamtökunum NSU. Þema vikunnar að Varmalandi verður„orka og jarðvarmi". Þátttakendur munu læra og kynnast því hvernig (slendingar nota orkuna. Farið verður í vettvangsrannsóknir ýmiss konar og samhliða því skoðuð jöklar, eldstöðvar og virkjanir. Þema vikunnar er mjög áhugavert og hefur vakið mikinn áhuga hjá þátttakend- um sem eiga örugglega eftir að njóta ver- unnar í Borgarfirði. Þátttakan kostar 17.000 krónur og innifalið í því er fæði og gisting. Leiklistarnámskeið í Færeyjum Leiklistarnámskeið verður haldið í Fuglafirði í Færeyjum dagana 12.-19. júlí í sumar og er það opið fólki á aldrinum 18-25 ára. Mikilvægt er að þátttakendur hafi reynslu í leiklist en þema vikunnar er „söngleikir". Æskilegt er að þátttakendur hafi takið þátt í söngleikjum. Námskeiðið í Fuglafirði er hið síðasta af þremur sem haldin verða. Á námskeiðinu er kennt í þrjá og hálfan tíma í senn, alls sjö tíma á dag. Markmiðið frá upphafi hefur verið að fá mjög hæfa leiðbeinendur og svo verður einnig í þetta skipti. Með þátttökunni er tilvalið f leiðinni að skoða Færeyjar sem bjóða upp á marga áhugaverða staði og einstaka náttúrufeg- urð. Þjálfararáðstefna í Þýskalandi Þjálfararáðstefna verður haldin í Suður- Slésvík í Þýskalandi dagana 10.-13. ágúst. Ráðstefnan er ætluð þátttakendum á aldrinum 18-35 ára og fer fram á ensku. Ef þú ert leiðbeinandi eða þjálfari og meðlimur í aðildarfélagi að NSU er þetta tilvalið tækifæri til að skerpa á kunnáttu þinni í þessum fræðum. Markmið ráðstefn- unnar er að efla tengsl á milli þjálfara og leiðtoga. Flún er ætluð þeim sem eru að hefja störf á þessum vettvangi og eins þeim sem hafa mikla reynslu. Þátttakendurfá á ráðstefnunni tæki- færi til að ræða saman um sameiginleg vandamál sem ýmiss konar félagasamtök á Norðurlöndunum standa frammi fýrir. Leiðtogaskóli NSU Hefur þú áhuga á að styrkja þig sem leið- togi? Leiðtogaskóli NSU verður næst hald- inn í Noregi í júlí 2006. Þátttakendur eru á aldrinum 18-25 ára og þurfa að vera með reynslu í félagsstörf- um frá félagi sínu. Hver aðildarsamtök NSU geta sent tvo þátttakendur. Möguleiki er á að senda fleiri ef eitthvert samtakanna nýtir ekki sæti sín. í leiðtogaskóla NSU er boðið upp á fjöl- breytta kennslu og mikið lagt upp úr virkri þátttöku nemenda. Kennslan fer fram á dönsku (skandinavísku) en það er mikil- vægt að þátttakendur geti einnig tjáð sig á enskri tungu. Hægt er að kíkja á nánari upplýsingar á heimasíðu NSU www.nsu.is eða /umfi/upload/files/pdf/lederskole.pdf Þeir sem hafa áhuga á að fara geta haft samband við Valdimar (Þjónustumiðstöð UMFÍ, valdimar@umfi.is Umsóknarfrestur er til 1. maí 2006. Þjónustumiðstöð UMFÍ (sími 568 2929) veitir frekari upplýsingar um ungmennavikuna, leiklistarnámskeiðið, þjálfararáðstefnuna og Leiðtogaskólann. SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 17

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.