Skinfaxi - 01.02.2006, Síða 25
Til stendur að sameina Ijögur félög á Isafirði
Blaðið Bæjarins besta á (safirði segir frá því að til standi að sameina fjögur
íþróttafélög á (safirði á næstu mánuðum að því er kemurfram í grein
frá Héraðssambandi Vestfirðinga. Félögin, sem um ræðir, eru Skíðafélag
(sfirðinga, Körfuknattleiksfélag (sfirðinga, Boltafélag (safjarðar og Sund-
félagið Vestri. Undanfari sameiningarinnar voru viðræðurfélaganna um
samræmingu iðkendagjalda og íþróttaæfinga barna yngri en 12 ára, til
þess að þeim gæfist kostur á að æfa fleiri en eina íþróttagrein án þess að
íþyngja forráðamönnum um of fjárhagslega.
Kosin var sameiningarnefnd undir formennsku Gylfa Guðmundssonar
og hefur hún unnið að skipulagningu sameiningarinnar.
Reiknað er með þvi að hið nýja félag verði með framkvæmdastjóra á
launum sem sjá muni um daglegan rekstur og hafi eftirlit með skipulagi
og fjármálum deilda. Þá er vonast til að í krafti stærðar sinnar verði auð-
veldara fyrir hið nýja félag að afla fjármagns. Stefnt er að því að félagið
taki yfir alla þjónustu og verkefni sem HSV hefur sinnt og mun starfsemi
héraðssambandsins þá leggjast af í þeirri mynd sem verið hefur. Kosið
verður um sameininguna á þingi HSV 8. apríl nk. og gangi hún í gegn
verðuröðrum íþróttafélögum á svæðinu boðin innganga.
Nafn hefur ekki enn verið valið á félagið og er því aðstoð íbúa (safjarð-
arbæjar vel þegin. Nýtt nafn er mikilvægt og eitt af því sem sameinar
hópinn en notkun nafna og lógóa þeirra félaga sem ganga inn í hið nýja
félag mun leggjast af og verður eftir það hluti af íþróttasögunni. Nokkrar
hugmyndir að nafni hafa komið fram og vill sameiningarnefndin gjarna
fá viðbrögð við þeim eða uppástungur um ný nöfn. Þau nöfn sem fram
hafa komið eru Vestfirðingur, Vestri og ísfirðingur. Álit og uppástungur má
senda á hsv@hsv.is merkt NAFNIÐ.
„Upphaf þessa máls er að þessi fjögur félög eru yfirgnæfandi í skipu-
lögðu íþróttastarfi, þ.e. þau eru með þjálfara á sinum snærum og skipu-
lagðar æfingar. Fyrir um rúmu ári síðan komu umrædd félög á samræðum
til að finna leið til að samræma æfingagjöld og gera þannig krökkunum
kleift að stunda fleiri en eina íþróttagrein án þess að það yrði foreldrum
um megn. Ég hélt utan um þessa vinnu og má segja að við höfum hrein-
lega rekist á vegg því að við fundum enga leið út úr þessu. Sú nefnd sem
að þessu starfaði gafst upp og upp frá því var farið að tala um hvort ekki
væri best að stefna á sameiningu en það væri ef til vill eina leiðin til að
gera þetta almennilega," sagði Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóri HSV,
í spjalli við Skinfaxa.
Gunnar sagði ennfremur að mjög gott sé að börn fái tækifæri til að
velja sér íþrótt sem hentar þeim, sumum hentar einstaklingsíþrótt en
öðrum hópíþróttir. Það skiptir máli að þau finni sér íþrótt, sem hentar
hverjum og einum, þá eru miklu meiri líkur á því að þau endist í íþrótta-
iðkun til frambúðar.
„Ég geri ráð fyrir að sameining félaganna verði samþykkt á þingi HSV
sem haldið verður 8. apríl. Öll félögin eru búin að samþykkja þetta innan
stjórna en eiga eftir að halda félagsfundi eða aðalfundi til samþykktar.
Vonandi verður svo þetta endanlega samþykkt á þinginu í apríl en
meiningin er að taka yfir starfsemi HSV og framkvæmdastjóri héraðs-
sambandsins mun færast inn í þetta nýja félag,"sagði Gunnar Þórðarson.
tímarit Ungmannafélags íslands 25