Skinfaxi - 01.02.2006, Blaðsíða 28
Ungmennafélagi í nærmynd - Anna Gerður Guðmundsdóttir HSÞ:
Starfið lifandi oq í mörg horn að líta
*Anna Gerður Guðmundsdóttir
hefurveriðframkvæmdastjóri HSÞ
frá því í ágúst sl. Hún er borin og
barnfæddur Þingeyingur og eins og
hún kemst sjálf að orði, alin upp í
ungmennafélagshreyfingunni. Anna
Gerður er menntaður kennari og
kennir smíðar við Hafralækjarskóla
samhliða starfinu hjá HSÞ.
„Ég er mjög ánægð í vinnuumhverfi mínu innan héraðs-
sambandsins. Það er í mörg horn að líta, starfið er lifandi
og ég er alltaf að hitta fólk. Segja má að starfið innan
HSÞ standi í blóma og við erum stolt af okkar fólki. Knatt-
spyrnumenn íVölsungi og í Magna standa sig vel og eins
frjálsíþróttafólkið en við erum í 1. deild sem segir sína
sögu. Fólk héðan í glímunni stendur sig einnig vel. Við
getum ekki annað en verið sátt og lítum björtum augum
til framtíðarinnar. Við stöndum í ströngu en undirbúningur
fyrir unglingalandsmótið er í fullum gangi og við hlökkum
mikið til að takast á við það verkefni,"sagði Anna Gerður í
samtali við Skinfaxa.
Við fengum Önnu Gerði til að vera ungmennafélaga í
nærmynd að þessu sinni.
Fullt nafn:
Anna Gerður Guðmundsdóttir.
Fæðingarstaður: Húsavík.
Heimili: Aðalból í Aðaldal.
Maki og börn: Maki er Bjarni
Höskuldsson og börnin Hall-
dóra Kristín 15 ára, Guðmund-
ur Helgi 12 ára, Jana Valborg 6
ára og Þráinn Maríus 2 ára.
Aldur: 36 ára.
Starf: Framkvæmdastjóri HSÞ
og smíðakennari við Hafra-
lækjarskóla.
Bifreið: Landrover Discovery.
Uppáhaldsmatur: Nauta- eða
lambakjöt.
Uppáhaldsdrykkur: Trönu-
berjatoppur.
Besti prentmiðillinn: Les
Fréttablaðið og Mannlíf eða
Nýtt líf.
Besti Ijósvakamiðillinn: Horfi
sáralítið á sjónvarp. Einfaldlega
ekki tími til þess.
Uppáhaldssjónvarpsþættir:
Breskir sakamála- og spennu-
þættir.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Jón Ársæll.
Besta íslenska bíómynd sem
þú hefur séð: Englar alheims-
ins.
Besta erlenda bíómynd sem
þú hefur séð:The Rock.
Besti leikari íslenskur: Hilmir
Snær og Ingvar E. Sigurðsson.
Besti leikari erlendur:
Al Pacino, Mel Gibson og Sean
Connery.
Uppáhaldstegund tónlistar:
Ég hlusta á mjög fjölbreytta
tónlist. Kannski ekki mikið í
þungarokkinu, en flest annað.
Uppáhaldssöngvari: Hlusta
mikið á nýja diskinn með
GarðariThor. Robin Williams
finnst mér góður, Mugison,
Ragnheiður Gröndal og svona
mætti lengi telja.
Eftirminnilegasta augna-
blikið: Fyrsta snertingin við
börnin mín.
Fyrirmynd: Kraftmikið dugn-
aðarfólk.
Fleygustu orð: Hroki er
heimska.
Áhugamál: Að ferðast með
fjölskyldunni.
Hvers gætirðu síst verið án:
Heilsu og fjölskyldu.
Hvað tækirðu með þér á
eyðieyju: Allt sem ég mögu-
lega gæti til að lifa af.
Hvað er ómissandi: íslenska
vatnið og góð heilsa.
Fallegasti staður á íslandi:
Það eru mjög margir fallegir
staðir á íslandi en ætli ég nefni
ekki Jökulsárgljúfur.
Minnstæðasta atvikfrá
Landsmóti: Þegar sonur minn
11 ára hljóp fyrsta sprettinn í
boðhlaupssveit 17-18 ára og
þeir urðu í öðru sæti.
Ef þú ynnir milljón í happ-
drætti:Tæki ég eldhúsið í
gegn hjá mér.
Hvað gleður þig mest:
Fjölskylda og góðir vinir.
Hvaða íslenskur íþrótta-
maður stendur fremstur í
dag: Eiður Smári er auðvitað
frábær og svo finnst mér Þor-
steinn Ingvarsson frjálsíþrótta-
kappi alveg frábær. Ungur
strákur sem er að gera mjög
góða hluti.
Besti íþróttamaður í heimi:
Get ekki tekið einn sérstakan
út. Finnst t.d. mjög gaman að
horfa á þá sem eru að keppa á
Gullmótunum ífrjálsum.
Fallegasti karlmaður sem þú
hefur séð fyrir utan maka:
Mel Gibson t.d.
Mottó í framtíðinni:
Að nota þá reynslu sem á vegi
mínum verður til að reyna að
bæta mig sem manneskju. Eitt
það versta í þeim efnum er að
halda að maður sé komin á
toppinn og geti ekki betur.
28 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands