Skinfaxi - 01.02.2006, Síða 30
Fréttir úr hreyfingunni...
Um 120 manns mættu á
84. héraðsþing HSK sem
haldið var á Hótel Örk í
Hveragerði 25. febrúar sl.
Á þinginu var gefin út
glæsileg ársskýrsla um
starfsemi héraðssamband-
sins á liðnu ári, sem er mynd-
skreytt með hátt í hundrað myndum. í
skýrslunni kemur fram að starfið var þrótt-
mikið á liðnu ári, bæði innan HSK og aðild-
arfélaga þess. Rekstur sambandsins gekk
vel á síðasta ári og var hagnaðurinn
314. 052 kr., eftir afskriftir.
Gestir þingsins voru Ellert B. Schram,
forseti ÍSÍ, Björn B. Jónsson, formaður
UMFÍ, og fyrrverandi formaður HSK, Haf-
steinn Þorvaldsson, fyrrverandi formaður
UMFÍ, og kona hans, Ragnhildur Ingvars-
dóttir. Jóhannes Sigmundsson, Árni
Þorgilsson, Einar Magnússon, Guðmundur
Kr. Jónsson og Jón Jónsson, allt fyrrverandi
formenn Skarphéðins, voru einnig boðs-
gestir, en þeir voru fulltrúar félaga sinna.
Björn B. Jónsson veitti Guðríði Aadnegard, ritara HSK og for-
manni Hamars, og Kristni Guðnasyni, formanni glímuráðs HSK og
gjaldkera Umf. Ingólfs, starfsmerki UMFÍ.
Miklar og góðar umræður fóru fram í fimm starfsnefndum
þingsins og um tuttugu tillögur voru samþykktar á þinginu.
Það mál sem mest var rætt í þingsal og starfsnefnd þingsins
var vegna Unglingalandsmóts UMFÍ árið 2008, en sækja þarf um
mótið fyrir 15. júní nk. Laugdælir,Trausti og Dalbúi lögðu sam-
eiginlega fram tillögu á þinginu, þess efnis að stjórn HSK yrði falið
að halda umrætt mót á Laugarvatni í samráði við Bláskógabyggð.
Á þinginu kom fram að Sveitarfélagið Ölfus hefur þegar samþykkt
íþróttamenn ársins 2005 hjá H5K ásamt formanni HSK, Gísla Páli Pálssyni.
að sækja um að fá að halda umrætt mót í Þorlákshöfn í samvinnu
við HSK og barst bréf þess efnis til skrifstofu HSK á dögunum.
Niðurstaða þingsins var sú að stjórn HSK var falið, í samvinnu
við þær sveitarstjórnir á sambandssvæðinu sem áhuga hafa, að
sækja um Unglingalandsmót UMFÍ árið 2008. Það er greinilegt að
mikill áhugi er til staðar á báðum stöðum að halda mótið. Stjórn
HSK mun fjalla um málið á fyrsta fundi eftir þing. Það er stjórn
UMFÍ sem ákveður endanlega hvar á landinu mótið fer fram og
verður staðarvalið kunngjört á Unglingalandsmótinu á Laugum
um næstu verslunarmannahelgi. Nánarverðurgreintfrá öðrum
tillögum þingsins í næstu HSK-fréttum.
«
) /7
Laugar í Dalasýslu
er ákjósanlegur staður fyrir minni og stærri hópa,
fyrirtæki, stofnanir og félagahópa til að halda árshátiðir, ráðstefnur
og til hvataferða. Laugar er einnig tilvalinn staður til æfingaferðar
fyrir íþróttafélög og margt fleira. Gisting og önnur aðstaða við allra
hæfi. Upplýsingar í símum 434-1600/861-2660 eða á www.umfi.is
Sigurður Sigurðarson, hestamaður í Geysi, var kosinn íþrótta-
maður HSK 2005, en kjörið fór nú fram í fertugasta sinn.
í lok þings var kosin átta manna stjórn og varastjórn sam-
bandsins og 16 starfsnefndir HSK. Gísli Páll Pálsson, íþróttafélag-
inu Hamri í Hveragerði, var endurkjörinn formaður sambandsins.
Ingvar Hjálmarsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs í varastjórn
og var Fanney Ólafsdóttir, fyrrverandi formaður Umf. Vöku, kosin í
hans stað.
Stjórn HSKskipa:
Formaður:
Gjaldkeri:
Ritari:
Varaformaður:
Meðstjórnandi:
Varamenn:
Gísli Páll Pálsson, íþróttafélaginu Hamri
Bolli Gunnarsson, Umf. Baldri
Guðríður Aadnegard, íþróttafélaginu Hamri
Ragnar Sigurðsson, Umf. Þór
Markús ívarsson, Umf. Samhygð
Helga Fjóla Guðnadóttir, Hestam.fél. Geysi
Bergur Guðmundsson, Umf. Selfoss
Fanney Ólafsdóttir, Umf. Vöku
Stjórn HSK vill koma á framfæri þakklæti til þeirra sem komu
að undirbúningi þinghaldsins og er (þróttafélaginu Hamri, Hótel
Örk og KB-banka sérstaklega þakkað samstarfið.
30 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands