Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.2008, Qupperneq 25

Skinfaxi - 01.08.2008, Qupperneq 25
Uppskeruhátíð UDN á Reykhólum Margrét Jóhannsdóttir: Þriðjudaginn 2. september 2008 lögðu börn og unglingar frá UDN leið sína á Reykhóla, á uppskeruhátíð sumarsins. Komið var saman í grunnskólanum á Reykhólum og byrjaði unga fólkið á því að leika sér bæði í íþróttahúsinu og líka úti. Fullorðna fólkið sat flest inni við að ræða landsins gagn og nauðsynjar. Síðan var tekið til við að grilla sér mat og snæddu allir saman í matsal skólans áður en verðlaunaafhending hófst. í sumarbyrjun var haldið innanhúss- mót í knattspyrnu fullorðinna á Laug- um þar sem fjöldi liða tók þátt og skemmtu allir sér vel. Sundmót UDN var haldið í Grettislaug á Reykhólum 7. júní og tókst vel, en ánægjulegt væri að fá fleiri keppendur á mótin. Haldin voru þrjú kvöldmót í surnar, eitt í hverjum mánuði júní -júlí - ágúst og voru samtals 84 þátttakendur á þess- um mótum. Á uppskeruhátíðinni fengu allir þátttakendur í kvöldmótunum verð- launapening. Einnig voru veittir bikarar í hverjum aldursflokki (einn fyrir stelp- ur og einn fyrir stráka) í verðlaun fyrir besta mætingu og árangur í heild á kvöld- mótunum þremur. Lágmarksmæting eru tvö kvöldmót til að geta fengið slík verðlaun. Einnig var veittur bikar fyrir besta afrek sumarsins á kvöldmótunum, samkvæmt stigatöflu FRÍ. Ungviðið hjá UDN saman komið á uppskeruhátíðinni á Reykhólum. Haldið var öldungamót í frjálsum íþróttum 12. júlí og tókst það ágætlega miðað við aðstæður en það rigndi eldi og brennisteini á meðan mótið fór fram. Mótið var haldið í tilefni af 90 ára afmæli UDN. Íþróttahátíð UDN var haldin 13. júlí og tókst vel en í lok móts tók að rigna töluvert á keppendur. UDN fór á Unglingalandsmót með 22 keppendur og voru þau til fyrirmyndar og stóðu sig með sóma. Ungmennin okkar tóku þátt í glímu, frjálsum íþrótt- um, sundi og knattspyrnu. Þátttakend- ur okkar í knattspyrnu voru allir í blönd- uðum liðum (þ.e. að í liðunum voru nokkrir frá okkur en síðan frá öðrum félögum/héraðssamböndum) en þau voru samt flest undir merkjum UDN, nema strákar 11-12 ára hétu Lands- bankaliðið. Að lokum þakkar stjórn UDN öllum fyrir þátttöku í starfi félagsins í sumar, bæði keppendum og aðstandendum, því að án þeirra væri starfið ekki mögulegt. Verðlaunahafar voru eftirfarandi: 8 ára og yngri: Hafdís Ösp Finnboga- dóttir, Björgvin Óskar Ásgeirsson og Vignir Smári Valbergsson. 9-10 ára: Þóranna Hlíf Gilbertsdóttir og Einar Björn Þorgrímsson. 11-12 ára: Sunna Björk Karlsdóttir og Arnar Ingi Karlsson. 13-14 ára: Lísa Margrét Sigurðardóttir og Magnús Bjarki Böðvarsson. 15-16 ára: Guðbjört Lóa Þorgríms- dóttir og Óskar Samúel Ingvarsson. 7 7 ára og eldri: Ásdís Helga Arnars- dóttir (enginn karlmaður tók þátt í meira en einu móti). Verðlaun fyrir bestu afrek sumarsins hlutu: Matthías Karl Karlsson fyrir spjótkast, 19,45 m, sem gefa 1089 stig. Þóranna Hlíf Giibertsdóttir fyrir lang- stökk, 3,43 m, sem gefa 843 stig. Veittir voru verð- launabikarar í hverjum aldurs- flokki og einnig fyrir bestu mæt- inguna og heildar- árangur. SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 25

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.