Skinfaxi - 01.08.2008, Side 27
Sumarhátíð
UÍA, sem fram
fór dagana
30.-31. ágúst
sl., heppnaðist
með ágætum.
Hátíðinni lauk með
afhendingu bikara fyrir frjálsar
íþróttir. Alls tóku á bilinu 300-350
keppendur þátt í hátíðinni.
Mikil ánægja er hjá UÍA með þátttök-
una og gekk framkvæmd hátíðarinnar
vel. UÍA vill sérstaklega þakka öllum
þeim sjálfboðaliðum sem unnu við fram-
kvæmd mótanna, en án þeirra er ekki
hægt að halda hátið af þessu tagi. Eins
eiga foreldrar og aðrir gestir hátíðarinn-
ar þakkir skilið fyrir að mæta, jafnvel
langt að, til að hvetja keppendur.
Mikill hugurímönnum
„Sumarhátiðin er eitt af stærstu verk-
efnum UÍA ár hvert. Hátíðin í ár tókst
vel í alla staði og mikil stemning var þar.
Það er mikil hefð fyrir þessari hátíð og
hún dregur til sín ijölda fólks. Núna
tekur vetrarstarfið við og við ætlum
m’.a. að vera með nokkur félagsmála-
námskeið með það að markmiði að efla
einstaklinginn og tengja hreyfinguna
betur inn í félögin. Það er ennfremur
markmið nýrrar stjórnar að efla starf-
semi UfA og gera hana sýnilegri en
verið hefur. Það er mikill hugur í
mönnum að þessum markmiðum verði
náð og að styrkja undirstöðurnar til
lengri tíma litið,“ sagði Stefán Bogi
Sveinsson, framkvæmdastjóri UÍA, í
samtali við Skinfaxa.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 27