Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 33
'V Á
Órn Dúi Kristjánsson kemurfyrstur í markí 100 m
3rindahjaupi sveina en í þeirri grein varð Andri
Mér Bragason, sem hljóp fyrir B-lið Eyfirðinga, í
öðru seeti!
Á myndinni hér fyrir neðan má sjá stigahæstu keppendur á aldursflokkamóti og þá sem heiðraðir
voru fyrir afrek. Á myndina vantar þau Gunnlaugu Helgu Ásgeirsdóttur og Örn Elí Gunnlaugsson.
Aftari röð frá vinstri: Kristján Godsk Rögnvaldsson, Ari H. Jósavinsson, þjálfari, Egill ívarsson, Jeff
Chris Hallstrom, Anton Orri Sigurbjörnsson. Fremri röð frá vinstri: Steinunn Erla Davíðsdóttir,
Sveinborg Katla Daníelsdóttir.
Frá verðlaunaafhendingu á lokahófi
frjálsíþróttadeildar UMSE.
ISttl
Óvæntasta afrek ársins;
Strákar:
Atiton Orri Sigurbjörnsson
Þessi kom okkur á óvart allt árið, kom
með skömmum fyrirvara inn á íslands-
meistaramót og vann til verðlauna öll-
um að óvörum nema þjálfaranum og
varð annar í 800 m á MÍ 15-22 ára
innanhúss.
Óvæntasta afrekið:
JejfChris Hallstrom
Á síðasta MÍ kom mjög svo óvænt afrek
sem fáir áttu von á en þar varð hinn mikli
Jeff íslandsmeistari í stangarstökki. Kom
það flestum á óvart, líka þjálfaranum,
þar sem hann hafði átt ömurlega æfingu
nokkrum dögum áður þar sem honum
var fyrirmunað að komast yfir 1,60 m,
hvað þá að hitta á dýnuna.
Besta hugarfarið:
Kristján Godsk Rögnvaldsson
Kristján er okkar besti íþróttamaður,
jákvæður, fastur fyrir, lýgur aldrei og
svo er það þetta mikla vinnusiðferði
sem einkennir hann. Hann er einn af
örfáum sem hægt er að treysta á að leggi
sig 110% fram.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 33